Dagmál Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, er gestur Dagmála í dag.
Dagmál Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, er gestur Dagmála í dag.
Stjórnarandstöðuþingmaðurinn Snorri Másson tekur undir að það sé mikil spenna í þinginu þessa dagana, en segir merkilegt að spennan sé nær öll hjá stjórnarliðinu, sem sé með „hrúgu af stórum málum“ í fanginu sem lítið gangi að þoka í gegnum hina þinglegu meðferð Alþingis

Stjórnarandstöðuþingmaðurinn Snorri Másson tekur undir að það sé mikil spenna í þinginu þessa dagana, en segir merkilegt að spennan sé nær öll hjá stjórnarliðinu, sem sé með „hrúgu af stórum málum“ í fanginu sem lítið gangi að þoka í gegnum hina þinglegu meðferð Alþingis.

Hann bendir á ýmis umdeild mál á borð við strandveiðifrumvarpið, sem ljóslega sé hluti af pólitískum hrossakaupum stjórnarflokkanna. Í því tilviki sé um að ræða hjartans mál Flokks fólksins, en í hinum stjórnarflokkunum hafi enginn sterka sannfæringu fyrir því, þeir tali ekki fyrir málinu heldur láti það dóla í gegn með ólundarsvip.

„Mér finnst eins og yfirflokkurinn, Samfylkingin, sé að láta undirflokkana svolítið bítast á sín á milli meðan þau geti hallað sér aftur.“ Einn daginn velti Flokkur fólksins sér upp úr strandveiðinni meðan Viðreisn engist, en næsta dag komi bókun 35 á dagskrá og þá mali Viðreisn en Flokki fólksins líði verr með það.

Hann minnir á að ráðherra Flokks fólksins hafi lýst yfir áformum um að styðja málið, sem hann þó telji stjórnarskrárbrot. Því sé illskiljanlegt að stjórnarflokkarnir hafi sett það stóra mál á dagskrá, um leið og þeir kvarti undan því að hafa ekki tíma til þess að afgreiða helstu mál sín.

Fyrir vikið sé asi á stjórnarliðinu en verra sé hirðuleysi um hvernig mál eru afgreidd, samráð sé af skornum skammti, gagnaöflun vanrækt og lítið gert með málefnalegar andbárur. Og markmiðin séu jafnvel annarleg, eins og lagabreyting um styrki til einkarekinna fjölmiðla sé gott dæmi um, hún beri vott um hefnigirni gagnvart fjölmiðlum sem flutt hafi fréttir af einstökum stjórnarþingmönnum, sem þeir telja koma sér illa.

En er einhver von til þess að semja um þinglok? Snorri sér engin merki um það enn, en segir að það muni ekki standa á Miðflokkum að ræða öll mál út.

„Við eigum ekkert að hika við að vera við störf eins lengi og þarf. Ég er ekkert að drífa mig. Við gerum það sem þarf að gera.“