Bandaríski tónlistamaðurinn Brian Wilson er látinn, 82 ára að aldri. Tilkynnt var um andlátið í gær.
Wilson var söngvari í hljómsveitinni vinsælu The Beach Boys sem sló í gegn á sjöunda áratugnum. Var hann einn af stofnendum hljómsveitarinnar og helsti lagasmiður hennar.
Börn Wilsons greindu frá andlátinu í tilkynningu á vefsíðu hans. „Við gerum okkur grein fyrir því að við deilum sorginni með heiminum,“ segir meðal annars í tilkynningunni en þar er jafnframt óskað þess að fjölskyldan fái næði til að syrgja.
Wilson fæddist í Inglewood í Kaliforníu 20. júní árið 1942. Ekki vantar smellina í lagasafni Brians Wilsons og nægir þar að nefna Surfin USA, California Girls, I Get Around og Good Vibrations.