Jón Ingi Sigurmundsson heldur þessa dagana sýningu á vatnslitamyndum sem er í Gallery Listaseli, Brúarstræti 1 í nýja miðbænum á Selfossi. Myndefnið er að mestu náttúra og byggingar á Suðurlandi eins og áður í verkum Jóns Inga
Jón Ingi Sigurmundsson heldur þessa dagana sýningu á vatnslitamyndum sem er í Gallery Listaseli, Brúarstræti 1 í nýja miðbænum á Selfossi.
Myndefnið er að mestu náttúra og byggingar á Suðurlandi eins og áður í verkum Jóns Inga. Hann hefur sinnt myndlistinni í áratugi og gjarnan málað með vatnslitum, hefur þó reynt sig við ýmsar aðferðir. Jóni Ingi var í áratugi kennari við skóla á Selfossi jafnhliða því sem hann sinnti kórstjórn, tónlistarkennslu og fleiru. Myndlistarsýningar hans skipta tugum og á þeirri sem uppi er núna eru nærri 20 myndir, segir í tilkynningu.