Hallgerður Hauksdóttir, fyrrverandi formaður Dýraverndarsambands Íslands, gagnrýnir það sem hún kallar áróður gegn íslenskum stóðhryssum og segir hann byggðan á fordómum og vanþekkingu. Í grein í Morgunblaðinu í dag segir hún að hryssurnar búi við…

Hallgerður Hauksdóttir, fyrrverandi formaður Dýraverndarsambands Íslands, gagnrýnir það sem hún kallar áróður gegn íslenskum stóðhryssum og segir hann byggðan á fordómum og vanþekkingu.

Í grein í Morgunblaðinu í dag segir hún að hryssurnar búi við mikla velferð og að tilvist þeirra stuðli að heilbrigði, frjósemi og erfðafjölbreytileika íslenska hestsins. Hún hafnar gagnrýni á blóðtöku úr hryssum, segir áhrifin hafa verið rannsökuð og að þau séu mild og skammvinn. Stóðhryssurnar lifi samkvæmt náttúrulegu eðli sínu í stöðugum félagshópum og tryggi framtíð sína með folöldum og blóðgjöf. Segir hún tilvik illrar meðferðar alltaf slæm, en að þau séu undantekningar og ættu ekki að vera grundvöllur aflagningar dýrahalds í heild sinni. „Lög um velferð dýra gilda um hryssurnar, það er ekkert verið að leyfa hér sérstaklega kerfisbundna illa meðferð á þeim,“ segir Hallgerður í greininni. » 38