Sumarstund Tími til að njóta á góðum degi í Grasagarðinum í Reykjavík.
Sumarstund Tími til að njóta á góðum degi í Grasagarðinum í Reykjavík. — Morgunblaðið/Unnur Karen
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Eftir margar góðar utanlandsferðir, meðal annars til Tenerife, ætlar fjölskyldan að ferðast innanlands í sumar. Maðurinn minn sem er að hálfu Íslendingur ólst upp á Nýja-Sjálandi og vill kynnast Íslandi betur

„Eftir margar góðar utanlandsferðir, meðal annars til Tenerife, ætlar fjölskyldan að ferðast innanlands í sumar. Maðurinn minn sem er að hálfu Íslendingur ólst upp á Nýja-Sjálandi og vill kynnast Íslandi betur. Með strákana okkar tvo, fjögurra og sex ára, er stefnan sett á Ísafjörð,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar.

„Hjólhýsið okkar góða er eins og heimili á hjólum. Sumarkvöldin geta verið frábær þegar dvalist er í fallegum skógarlundi, húmið færist yfir og gott er á grillinu, kannski grænmeti og lambakjöt. Mér finnst líka sennilegt að við förum norður, til dæmis til Akureyrar. Halda svo áfram og þar sé ég Ásbyrgi og Hljóðakletta fyrir mér í hillingum, svo ljúfar eru æskuminningar mínar frá ferðum þangað með foreldrum mínum þegar ég var barn. Svo heillar Austurland, en ég er ættuð úr Neskaupstað. Ég hlakka til að sýna strákunum mínum alla þessa mögnuðu staði.“

„Ég hlakka til að eiga gott sumar heima í Grindavík. Síðustu árin hefur tilveran verið sundurslitin af jarðhræringum og eldsumbrotum. Nú er rórra og lífið að færast í eðlilegt horf,“ segir Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður Járngerðar – íbúasamtaka Grindavíkur.

„Nú eru um 80 fjölskyldur aftur fluttar heim í gömlu húsin samkvæmt samningum sem gilda fram á haust. Vonandi verða þeir framlengdir svo næsta vetur verði föst búseta víða hér um bæinn. Sumarið verður góður undirbúningstími.“

Um miðjan júlí stefnir Guðbjörg með sínu fólki í árlegan Veiðivatnatúr og meira gæti komið til. „Í fyrra gerðust þau ósköp að ég komst ekki í Þórsmörk sem þó hafði verið fastur liður í 40 ár. Þetta má ekki henda aftur og nú er Merkurtúr kominn á áætlun. Þá munum við fjölskyldan verða í fellihýsi í Básum á Goðalandi og gera þaðan út í gönguferðir í Langadal, á Valahnúk, Húsadal og víða um þetta magnaða svæði.“

„Hér heima verður nóg um að vera á næstunni og gestagangur allt sumarið. Slíkt er bara skemmtilegt en auðvitað förum við eitthvað í frí, sem stundum eru samofin starfi,“ segir Sævar Guðjónsson, ferðaþjónustubóndi á Mjóeyri við Eskifjörð. „Síðari hlutann í júní verður hér gönguvika, dagskrá með skipulögðum fjallaferðum í Fjarðabyggð. Þar ætla ég að taka þátt í göngum meðal annars á Svartafjall og Sómastaðatind sem eru hér ekki langt undan. Til þeirra ferða hlakka ég mikið.“

Þegar komið er fram í júlí segir Sævar að þau Berglind Ingvarsdóttir eiginkona hans stefni í fjallaferð, væntanlega þá eitthvað á svæðið norðan Vatnajökus.

„Við erum með frábæran ferðabíl sem hentar vel í slark. Þarna horfum við á að fara til dæmis að Snæfelli, Kárahnjúkum, í Kverkfjöll, Herðubreiðarlindir og Öskju, allt óviðjafnanlega staði. Þegar þessu lýkur tekur hreindýratímabilið við, það er leiðsögn mín með skyttur. Þar verðum við á svæði fimm sem kallað er og nær yfir Eskifjörð, Vöðlavík, Sandvík, Viðfjörð, Hellisfjörð og Gerpi. Þetta er svæði sem ég þekki afar vel eftir brölt þar í áratugi. Eitt árið gekk ég þarna alls um 2.700 kílómetra, upp og niður brekkur, fjöll, dali og um langar fjörur.“

„Fjölskyldan er búin að taka frá sex vikur í frí og við hlökkum til,“ segir Sigurður Ólafur Sigurðsson, ljósmyndari í Kópavogi. „Stefnan er sett á ferðalag um Alpafjöll í Austurríki og á Ítalíu. Þá fljúgum við til München í Þýskalandi, leigjum þar húsbíl og höldum svo upp til fjallanna í stórbrotið umhverfið.“

Hér innanlands segist Sigurður Ólafur ætla með sínu fólki eitthvað inn á fjöll og þá komi sér vel að vera á góðum jeppa með svefnaðstöðu.

„Ætli við fylgjum ekki bara því þjóðarsporti að fylgja veðurspá og elta góða veðrið. Reynum að finna staði þar sem er mátulega margt, forðumst fjölmennið. Svo má líka vel vera að verkefni tengd Slysavarnafélaginu Landsbjörg sem ég starfa fyrir detti inn. Þar hef ég stundum myndað björgunarsveitirnar á Hálendisvaktinni. Verið þá með þeim í fjölbreyttum verkefnum, það er að aðstoða fólk sem hefur lent í vanda, festir bílinn sinn eða meitt sig.“

„Ævintýrin koma í röðum. Nú er úthaldi okkar fyrir Ferðafélag Íslands í Þórsmörk að ljúka og þá tekur næsta verkefni við,“ segir Ásta Begga Ólafsdóttir. Þau Gísli Sveinsson eiginmaður hennar hafa lengi starfað fyrir Ferðafélag Íslands og voru í maí og fram í júní í Skagfjörðsskála í Langadal í Mörkinni. Nú fara þau á Laugaveginn og verða í fjallaskálanum við Hvanngil fram í september. Þá fara þau aftur í Mörkina og loka vertíðinni þar.

„Störfum við ferðaþjónustu fylgja kynni við marga en þetta er auðvitað talsvert meira. Þau sem ganga Laugaveg þurfa margs með. Göngufólk er misjafnlega búið og sum taka ekki með í reikninginn að vera inni á öræfum. Stundum þarf því að þurrka föt og hita drykki fyrir hrakið fólk. Í skálavörslu er erill allan daginn. Inn á milli koma þó rólegar stundir og þá er fínt að fara eitthvað frá. Við Laugaveg eru mörg fjöll sem gaman er að ganga á og virða fyrir sér útsýnið af efsta tindi þeirra.“ sbs@mbl.is