Sviðsljós
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hin þekkta Jagúarbifreið nóbelsskáldsins, Halldórs Kiljans Laxness, hefur farið í gegnum mikla yfirhalningu og verður aftur til sýnis næstkomandi laugardag á „heimavelli sínum“ á Gljúfrasteini í Mosfellsdal. Á milli 50 og 60 nemendur á bíltæknibraut í Borgarholtsskóla hafa tekið þátt í því að koma bifreiðinni í eins gott ásigkomulag og frekast er unnt og hefur verkefnið staðið yfir í fjögur ár.
„Ég hafði umsjón með verkefninu og var í samskiptum við fólkið á Gljúfrasteini en fjórir aðrir kennarar komu einnig að verkinu. Bifreiðasmiðir og bílamálarar kenndu nemendum á þeim tíma en verkið tók fjögur ár. Á þeim tíma komu 50-60 nemendur að því að gera bílinn upp. Þegar einhverjir útskrifuðust komu aðrir inn og þannig gekk þetta síðastliðin fjögur ár,“ segir Ólafur Gunnar Pétursson deildarstjóri hjá Borgarholtsskóla.
„Við rifum í rauninni bílinn. Hurðirnar voru teknar af og við rifum allt innan úr bílnum, þar á meðal mælaborðið. Þá var byrjað að slípa niður í járn að innan og grunna. Við ryðbættum og réttum eins og þurfti en það var reyndar ekki mikið. Auk þess var bíllinn málaður að innan sem utan. Mótorinn var tekinn úr bílnum og vélasalurinn var því einnig málaður og sama má segja um skottið. Þá má nefna að í bílnum er viðarinnrétting að hluta. Bíllinn stóð lengi utandyra og innrétting var farin að fúna og mygla. Smiður á vegum Gljúfrasteins lagaði viðarinnréttinguna,“ útskýrir Ólafur Gunnar og nefnir að fyrirtækið Eðalbílar hafi farið yfir allan vélarbúnaðinn.
Vakti áhuga nemenda
Halldór Laxness eignaðist bifreiðina árið 1968 og setti hún svip á höfuðborgarsvæðið á sínum tíma. Ólafur Gunnar segist hafa þurft að velta því aðeins fyrir sér hvort skynsamlegt væri að ráðast í að taka þessa þekktu bifreið í gegn.
„Þetta var áskorun fyrir okkur og ég velti því vel fyrir mér á sínum tíma hvort maður ætti að taka þetta að sér eða ekki. Samkennarar mínir hristu bara hausinn held ég. Í samráði við sviðsstjórann var ákveðið að taka slaginn og fá þetta verkefni til okkar. Áður höfðum við öðlast reynslu þegar við tókum að okkur bíl frá lögreglufélaginu. Það var ekki eins viðamikið en við ryðbættum og máluðum lögreglubílinn. En við fundum að þetta vakti áhuga nemenda.“
Vildu hressa upp á námið
Hann segir talsverðan mun felast í því fyrir nemendur að vinna við eitthvað sem verður til sýnis og að æfa sig á hlutum sem fara í ruslið að áfanganum loknum.
„Hugmyndin var að skapa verkefni fyrir nemendur og gera eitthvað sem væri sýnilegt í framtíðinni. Við skynjuðum að við þyrftum að hressa upp á námið í bifreiðasmíði og bílamálun. Fyrir vikið höfðum við áhuga á verkefnum þar sem eitthvað væri tekið inn til okkar og skilað til baka. Áður höfðum við fundið gömul bretti sem nemendur voru að rétta og þess háttar en það voru ekki alvöru verkefni ef þannig má að orði komast. Gamalt dót sem var hent út í gám eftir að nemendur höfðu unnið með það. En það var kannski svolítið bratt að taka þennan gamla fræga Jagúar. Maður var ekki alltaf alveg rólegur yfir þessu en þetta hafðist allt saman. Þetta tókst ljómandi vel og nemendur hafa sýnt þessu áhuga,“ segir Ólafur Gunnar og til skoðunar er að nemendur við skólann fái fleiri stór verkefni.
„Slökkviliðið hefur haft orð á því við okkur að taka gamlan Ford, 78-módel, sem notaður var sem slökkvibíll í Reykjavík. Við höfum ekki tekið ákvörðun og þurfum að vanda valið. En þetta spyrst út og er fín auglýsing fyrir skólann.“
Glæsikerra
Bifreiðin er af gerðinni Jagúar 340 Saloon, árgerð 1968.
Rithöfundurinn Halldór Kiljan Laxness eignaðist bifreiðina í maí 1968 og vakti það mikla athygli á sínum tíma.
Jagúarinn hefur verið til sýnis í safninu á Gljúfrasteini í Mosfellsdal þar sem Halldór og Auður bjuggu.
Bifreiðin hefur fengið góða yfirhalningu en síðustu fjögur árin hafa nemendur á bíltæknibraut í Borgarholtsskóla unnið við að gera Jagúarinn upp.
Jagúarinn rennir þar aftur í hlað á laugardaginn klukkan 16.15.