Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við viljum að ráðherra höggvi á hnútinn, hann hefur valdið og lokaorð í þessu máli og vonumst við til að hann geti lagt sín lóð á vogarskálarnar,“ segir Þuríður Sigurðardóttir, söngkona og einn Laugarnesvina, sem afhentu Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfisráðherra undirskriftir í gær með hvatningu um að Laugarnestangi í heild sinni verði friðlýstur.
Um 3.300 manns skrifuðu undir lista sem Laugarnesvinir hafa safnað nöfnum á undanfarnar vikur og mánuði.
Um er að ræða óformleg samtök fólks sem þykir vænt um Laugarnesið. Markmiðið með undirskriftunum er að allt Laugarnesið verði friðlýst, en hluti svæðisins er þegar friðlýstur samkvæmt þjóðminjalögum, þ.e. kirkjugarðurinn 1930 og bæjarhóllinn 1987, og svokallaðar beðasléttur í túni eru friðaðar.
Saga allt frá landnámi
Þuríður segir Laugarnesvini hafa m.a. staðið fyrir sögugönguferðum um Laugarnesið, þar sem um 200 manns hafa mætt í hvert skipti. Einnig hafa verið haldnar svonefndar Laugarnesvökur í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Á þessum viðburðum hefur undirskriftum verið safnað sem og með rafrænum hætti á samfélagsmiðlum.
„Við höfum verið með fræðslu um merkilega sögu svæðisins, sem nær allt aftur til landnáms. Við viljum ekki fórna þessu svæði undir byggingar,“ segir Þuríður en áform eru um byggingar á landfyllingum við Laugarnesið. Íbúar í Laugarnesinu hafa verið ósáttir við áformin og telja byggingarnar hindra útsýni til Viðeyjar og sundanna bláu.
Svæðið er á náttúruminjaskrá og á verndaráætlun fyrir minjasvæðið á Laugarnestanga, sem undirrituð var árið 2016 af Minjastofnun og Reykjavíkurborg. Í inngangi áætlunarinnar segir að tilgangurinn sé að tryggja verndun fornleifanna á sem bestan hátt og veita leiðsögn um samspil verndunar og nýtingar, skipulags og reksturs.
Um vernd og stjórnsýslu fornleifa gilda lög um menningarminjar nr. 80/2012. Á minjasvæðinu á Laugarnesi eru friðlýstar fornleifar auk aldursfriðaðra fornleifa og um þær fyrrnefndu gilda strangari reglur.
Þuríður segir þessa verndaráætlun ekki hafa gengið eftir. Laugarnesvinir hafi átt gott samstarf við borgina og Minjastofnun en milli þessara stofnana sé hins vegar togstreita sem ráðherra þurfi að taka á.
Eins og fram kom á mbl.is um síðustu helgi beittu Laugarnesvinir sér fyrir stöðvun framkvæmda Veitna við lagnastokk, sem liggja á um gamla kirkjugarðinn og við bæjarhólinn. Fengu samtökin Minjastofnun í lið með sér, sem stöðvaði verkið með formlegum hætti þar sem um friðað svæði er að ræða og raskið stutt frá fornleifum.
„Við vonumst til þess að samtölin verði til þess að ekki verði hróflað við minjum á Laugarnestanga, og að þessar undirskriftir skapi umræðu og aðhald hjá þeim aðilum sem hafa heimildir til að gefa út framkvæmdaleyfi. Við Laugarnesvinir óskum eftir friði frá mannvirkjum sem hindra útsýni, bæði frá byggðinni og strandlengjunni, allt frá Laugarnesi út að Hörpu,“ bætir Þuríður við, sem fædd er og uppalin í Laugarnesbænum.
Umhverfisráðherra
Tók vel á
móti Laugarnesvinum
Þuríður segir Jóhann Pál umhverfisráðherra hafa tekið vel á móti Laugarnesvinum. Hann hafi sett sig vel inn í málið og heitið því að grípa inn í ef friðlýsingarferlið hjá Reykjavíkurborg og Minjastofnun gangi eitthvað treglega. Friðlýsing Laugarness þurfi að klárast á næstu misserum.
„Þetta var mjög góður og jákvæður fundur,“ segir Þuríður.