17. júní Kristrún afsalaði sér hátíðarávarpinu til Höllu Tómasdóttur.
17. júní Kristrún afsalaði sér hátíðarávarpinu til Höllu Tómasdóttur. — Morgunblaðið/Eyþór
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðið Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að flytja hátíðarávarp á Austurvelli á 17. júní, í sinn stað. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Hefði þetta verið fyrsta hátíðarávarp Kristrúnar sem forsætisráðherra

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðið Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að flytja hátíðarávarp á Austurvelli á 17. júní, í sinn stað. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Hefði þetta verið fyrsta hátíðarávarp Kristrúnar sem forsætisráðherra. Hátíðarávarpið hefur ávallt verið flutt af forsætisráðherra og er því um nýbreytni að ræða. Þá verður athöfnin sýnilegri almenningi en áður, að því er segir í tilkynningunni. Athöfnin á Austurvelli verður í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV og bein útvarpsútsending verður frá hátíðarguðsþjónustunni sem hefst klukkan kl. 10.15.

Að öðru leyti verður dagskráin með hefðbundnum hætti.

Forsætisráðherra leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og fjallkonan flytur ávarp en venju samkvæmt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til hún gengur út á völlinn. Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli að Hólavallakirkjugarði.