Söngkonan, lagasmiðurinn og fiðluleikarinn Anna Sóley, gítarleikarinn Daníel Helgason og kontrabassaleikarinn Nicolas Moreaux koma fram á Hótel Holti í kvöld, fimmtudaginn 12. júní. Segir í tilkynningu að þar flytji þau blöndu af nýjum og gömlum…
Söngkonan, lagasmiðurinn og fiðluleikarinn Anna Sóley, gítarleikarinn Daníel Helgason og kontrabassaleikarinn Nicolas Moreaux koma fram á Hótel Holti í kvöld, fimmtudaginn 12. júní. Segir í tilkynningu að þar flytji þau blöndu af nýjum og gömlum lögum eftir Önnu ásamt vel völdum samtímadjasstónsmíðum með það að markmiði að mála upp hugljúfa stund með áheyrendum. Tónleikarnir standa yfir í klukkustund og hefjast klukkan 18.