Jón Ingi Cæsarsson, fv. formaður Póstmannafélags Íslands, lést á hjartadeild Landspítalans 7. júní síðastliðinn, 72 ára að aldri. Jón Ingi fæddist 13. desember 1952 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Þórdís Eiríksdóttir og Kristvin Kristinsson en hann …

Jón Ingi Cæsarsson, fv. formaður Póstmannafélags Íslands, lést á hjartadeild Landspítalans 7. júní síðastliðinn, 72 ára að aldri.

Jón Ingi fæddist 13. desember 1952 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Þórdís Eiríksdóttir og Kristvin Kristinsson en hann var ættleiddur af hjónunum Huldu Ragnarsdóttur og Cæsari Hallgrímssyni, sem komu með hann til Akureyrar sex daga gamlan. Ólst Jón Ingi upp á Eyrinni á Akureyri og bjó þar að mestu alla ævi sína.

Jón Ingi gekk í Oddeyrarskóla og Gagnfræðaskóla Akureyrar og fór síðar í Póst- og símaskólann. Starfaði hann hjá Pósti og síma, síðar Íslandspósti og Póstinum allan starfsferilinn. Hann átti lengi sæti í stjórn Póstmannafélags Íslands, fyrst árin 1984-86, síðan 2000-2009 og árið 2017 var hann kjörinn formaður félagsins. Gegndi Jón Ingi því embætti til 2023 en tók eftir það sæti í ritnefnd félagsins.

Jón Ingi starfaði lengi að bæjarmálum á Akureyri fyrir Samfylkinguna. Var hann kjörinn formaður flokksins á Akureyri við stofnun hans 2001. Þá átti hann sæti í flokksstjórn Samfylkingarinnar. Var Jón Ingi um tíma varabæjarfulltrúi fyrir flokkinn og átti sæti í nokkrum nefndum Akureyrarbæjar, m.a. í skólanefnd og sem formaður skipulagsnefndar og umhverfisráðs. Hann var einnig í nefnd um svæðisskipulag Eyjafjarðar. Jón Ingi var jafnframt í ýmsum nefndum og starfshópum á vegum Akureyrarbæjar, m.a. samnorrænu verkefni um umhverfismál sveitarfélaga á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar.

Jón Ingi var virkur í þjóðfélagsumræðunni allt til dauðadags og ritaði fjölda greina í blöð og tímarit, m.a. í Morgunblaðið, og á eigin vefsíðu. Var hann ötull í skrifum sínum að benda á hluti sem að hans mati höfðu aflaga farið. Hann var einnig mikill áhugamaður um ljósmyndun, náttúruna og varðveislu gamalla húsa.

Eftirlifandi eiginkona Jóns Inga er Guðrún Gunnarsdóttir. Synir þeirra eru Atli Viðar, f. 1987, og Bjarki Freyr, f. 1992. Dóttir Jóns Inga og Margrétar Pálu Ólafsdóttur er Brynja, f. 1975. Barnabörnin eru níu talsins og langafabörnin þrjú.