Hækkun Heimsmarkaðsverð á kaffi hefur hækkað um 92% síðasta árið.
Hækkun Heimsmarkaðsverð á kaffi hefur hækkað um 92% síðasta árið. — Morgunblaðið/Karítas
Verð á kaffi hefur hækkað hressilega síðustu vikur. Þær hækkanir koma ofan á tugprósenta verðhækkanir á einstaka vörutegundum frá áramótum. Samkvæmt upplýsingum frá verðlagseftirliti ASÍ nema verðhækkanir allt að 15%

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Verð á kaffi hefur hækkað hressilega síðustu vikur. Þær hækkanir koma ofan á tugprósenta verðhækkanir á einstaka vörutegundum frá áramótum.

Samkvæmt upplýsingum frá verðlagseftirliti ASÍ nema verðhækkanir allt að 15%. Er þá miðað við meðalverð í maí og nýjustu verð.

Í verslunum Bónuss hefur malað kaffi og baunir frá Te & kaffi hækkað um 15% á umræddu tímabili. Púðar frá Te & kaffi hafa hækkað um 11% bæði í Bónus og Krónunni. Baunir frá Te & kaffi hafa hækkað um 9% í Krónunni.

Malað kaffi frá Gevalia hefur hækkað um 9% í Krónunni en um 7% í Bónus. Vörur frá Kaffitári hafa líka hækkað í verslunum Krónunnar; malað kaffi um 6% og baunir um 4%.

Morgunblaðið fjallaði um hækkanir á kaffiverði í síðasta mánuði. Þá kom fram að verð á kaffi í fjórum stærstu matvöruverslunum landsins hafði hækkað um 7,4% síðasta árið samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ. Dæmi voru um að einstaka vörutegundir hefðu hækkað um allt að 33% síðasta árið.

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon