Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá Reykjavíkurborg vegna fundargerðar afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar sem var tekin út af heimasíðu borgarinnar og breytt áður en hún var birt aftur.
Tilefni frumkvæðis umboðsmanns er vegna fréttar Morgunblaðsins og mbl.is í síðasta mánuði þar sem bent var á að Reykjavíkurborg hefði tekið fundargerð með umsögn um kjötvinnslu við Álfabakka, breytt henni og birt hana aftur daginn eftir.
Í fyrirspurn umboðsmanns er óskað eftir upplýsingum um hvort fundargerðin hafi verið tekin út af vefsíðunni og sett inn á nýjan leik með breyttri umsögn skipulagsfulltrúa og þá hvort útgáfa þessarar umsagnar hafi verið samþykkt á fundi.
„Hafi umsögninni verið breytt eftir að fundargerðin var birt er óskað upplýsinga um hvaða breytingar hafi verið gerðar, hvers vegna og á hvaða grundvelli. Hafi breytingar verið gerðar á fundargerðinni er óskað upplýsinga um hvort sú framkvæmd tíðkist almennt við birtingu fundargerða hjá Reykjavíkurborg og þá við hvaða aðstæður,“ segir m.a. í fyrirspurn umboðsmanns.
oskar@mbl.is