Fimmtán óleystar kjaradeilur eru um þessar mundir á borði ríkissáttasemjara og í vinnslu eftir vísanir viðræðna til embættisins. Kjarasamningar hafa einnig náðst að undanförnu en á síðustu dögum hafa tveir nýir kjarasamningar verið undirritaðir samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá ríkissáttasemjara.
Annars vegar er um að ræða kjarasamning á milli Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna stjórnenda slökkviliða og hins vegar kjarasamning sem náðst hefur á milli Sjúkraliðafélags Íslands og samninganefndar sveitarfélaganna.
Fram kemur í kynningu á samningi LSS vegna stjórnenda slökkviliða að hann sé á sömu nótum og aðrir samningar sem gerðir hafi verið. Er stefnt á að kynna kjarasamninginn upp úr næstu helgi og að atkvæðagreiðsla fari fram frá 16. til 19. júní. Í kynningu Sambands íslenskra sveitarfélaga á samningnum við sjúkraliða kemur fram að í nýja samningnum sé gert ráð fyrir innleiðingu starfsmats með bráðabirgðaröðun starfa sjúkraliða.
Meðal mála sem eru í vinnslu hjá ríkissáttasemjara eru óleystar kjaraviðræður AFLs og Fagfélaganna og Alcoa Fjarðaáls. Í tilkynningu frá stéttarfélögunum í gær er lýst miklum vonbrigðum með gang viðræðnanna. Alcoa hafi, líkt og aðrar stóriðjur hér á landi, of lengi komist upp með að greiða starfsfólki taxta sem séu lægri en tíðkist á almennum vinnumarkaði og Alcoa ítrekað lagt fram tilboð um hlutfallslega minni launahækkanir en gangi og gerist á almennum vinnumarkaði. omfr@mbl.is