Andrea Sigurðardóttir
andrea@mbl.is
Ríkisendurskoðandi segir tímabært að endurskoða lög um starfsemi stjórnmálasamtaka, sem fjalla meðal annars um opinbera styrki sem stjórnmálaflokkar fá frá ríki og sveitarfélögum.
Hann hafi ekki eftirlit með óskyldum aðilum sem stjórnmálasamtök veiti opinberum styrkjum sínum til og því ekki heimildir til að kalla eftir gögnum frá þeim.
Lög um starfsemi stjórnmálasamtaka kveða meðal annars á um að stjórnmálaflokkar geti þegið opinbera styrki að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, sem lúta meðal annars að gangsæi í meðferð opinbers fjár, eftirliti ríkisendurskoðanda og aðhaldi almennings.
Morgunblaðið fjallaði um það í gær að Sósíalistaflokkurinn hefur frá árinu 2022 greitt opinbera styrki sína út til óskyldra félaga, sem lúta ekki sömu gagnsæiskvöðum og skráðir stjórnmálaflokkar og ekki eftirliti ríkisendurskoðanda.
Í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins bendir ríkisendurskoðandi á að ólík sjónarmið hafi verið uppi varðandi íhlutun um innri mál stjórnmálaflokka, og vísar í því samhengi í frumvarp laga um starfsemi stjórnmálasamtaka.
„Þannig kunni að vera æskilegt að forðast sem mest löggjöf sem hlutast til um innri málefni stjórnmálaflokka til að tryggja stöðu þeirra sem sjálfstæðra aðila í stjórnkerfinu og að félagsmenn þeirra hafi stjórn á innri málum þeirra að öllu leyti.“
Fram komi að almennt séð hljóti löggjafinn að verða að fara með mikilli gát þegar hlutast er til um innri mál stjórnmálaflokka.
„[…] mikilvægt sé að sú íhlutun verði aldrei meiri en réttlætanlegt geti talist út frá brýnum almannahagsmunum. Brýnt sé þá að slík löggjöf sé til þess fallin að treysta starfsumhverfi stjórnmálaflokkanna og draga úr eða eyða óvissu um fjármögnun þeirra.“
Í ljósi reynslunnar sé tímabært að endurskoða ofangreind lög.
„Svo þau geti betur náð markmiðum sínum um að auka traust á stjórnmálastarfsemi, tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði stjórnmálasamtaka og efla lýðræði og gagnsæi stjórnmálanna.“