Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Staðfest var í gær að a.m.k. einn farþegi hefði lifað af þegar farþegaþota á vegum indverska flugfélagsins Air India hrapaði skömmu eftir flugtak í gærmorgun í borginni Ahmedabad. Alls voru 242 um borð í vélinni, þar af tólf í áhöfn hennar. Þá staðfesti Air India í gær að 169 Indverjar, 53 Bretar, sjö Portúgalar og einn Kanadamaður hefðu verið um borð.
Atvikið átti sér stað kl. 13:40 að staðartíma, eða um kl. 8:10 að íslenskum tíma, en vélin hófst þá á loft frá flugvelli Ahmedabad-borgar, og átti hún að lenda á Gatwick-flugvelli í Lundúnum. Skömmu eftir flugtakið barst neyðarkall frá vélinni, en hún náði mest tæplega 400 feta hæð áður en hún hrapaði aftur til jarðar. Lenti vélin á gistiheimili fyrir lækna, en sjúkrahús er skammt frá slysstaðnum.
GS Malik, lögreglustjóri í Ahmedabad, sagði við AFP-fréttastofuna í gær að 204 lík hefðu fundist og að 41 maður hefði verið fluttur á sjúkrahús. Voru hinir látnu bæði farþegar í vélinni og einnig fórnarlömb sem voru á jörðu niðri þegar hún lenti, en brotlendingin olli mikilli sprengingu. Voru einhver fórnarlömbin sögð vera læknar eða læknanemar sem dvöldu á gistiheimilinu.
Í fyrstu var talið að allir um borð hefðu farist í flugslysinu en síðar um daginn bárust fregnir af því að einn farþegi hefði komist lífs af, og var hann fluttur á sjúkrahús. Sagði Malik að farþeginn, Vishwash Kumar Ramesh, hefði setið í sæti 11A, en hann er breskur ríkisborgari.
Indverskir fjölmiðlar ræddu í gær við Ramesh og tjáði hann þeim að um þrjátíu sekúndum eftir flugtak hefði heyrst hávært hljóð og vélin hefði hrapað í kjölfarið. Sýndi hann þeim jafnframt brottfararspjald sitt. Sagðist hann hafa staðið upp eftir flugslysið og séð lík allt í kringum sig.
Rannsókn er nú hafin á tildrögum slyssins. Sérfræðingar í flugslysum frá bæði Bretlandi og Bandaríkjunum héldu til Indlands í gær til þess að aðstoða við rannsóknina.
Á myndskeiði sem birtist á samfélagsmiðlum í gær mátti sjá vélina nánast svífa aftur til jarðar strax eftir flugtakið með hjólastellið enn niðri, en þeir sérfræðingar í flugmálum sem breska ríkisútvarpið BBC ræddi við í gær sögðu að svo virtist sem flapar vélarinnar væru ekki í flugtaksstöðu, sem aftur myndi útskýra hvers vegna hún hefði ekki náð nægilegum lyftikrafti til þess að ljúka við flugtakið.
Vélin var af gerðinni Boeing 787-8 Dreamliner, en þetta er fyrsta flugslysið sem vél af þeirri gerð lendir í. Boeing-flugvélaverksmiðjurnar sendu í gær frá sér yfirlýsingu þar sem þær sögðust myndu aðstoða Air India á alla vegu vegna slyssins. Lýstu forsvarsmenn Boeing jafnframt samúð sinni með fórnarlömbum og aðstandendum.
Samúðarkveðjur streyma að
Karl 3. Bretakonungur sendi í gær sínar dýpstu samúðarkveðjur til aðstandenda fórnarlambanna. Karl, sem jafnframt er höfuð breska samveldisins, sagði að hann og Kamilla Bretadrottning væru í miklu áfalli vegna hinna hryllilegu atburða í Ahmedabad.
Samúðarkveðjur bárust einnig frá öðrum þjóðarleiðtogum, þar á meðal forsætisráðherrum Bretlands, Kanada og Portúgals, þeim Keir Starmer, Mark Carney og Luis Montenegro.
Þá sendu stjórnvöld í Pakistan sérstakar samúðarkveðjur til fjölskyldna fórnarlambanna, og sagði Shehvaz Sharif forsætisráðherra flugslysið vera hryggilegan harmleik, en Indland og Pakistan áttu í fjögurra daga átökum í síðasta mánuði.