Í frétt Morgunblaðsins í gær kom fram að leyfi til að steypa þakplötu á Brákarborg hefði verið gefið án þess að burðarvirkisteikningar lægju fyrir og það hefði verið fulltrúi verkkaupa sem var eftirlitsaðili frá Verksýn sem gaf leyfi fyrir steypunni

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Í frétt Morgunblaðsins í gær kom fram að leyfi til að steypa þakplötu á Brákarborg hefði verið gefið án þess að burðarvirkisteikningar lægju fyrir og það hefði verið fulltrúi verkkaupa sem var eftirlitsaðili frá Verksýn sem gaf leyfi fyrir steypunni.

Reynir Kristjánsson, byggingafræðingur BFÍ, múrarameistari og einn eigenda Verksýnar, segir misskilninginn í þessu vera vegna þess að eftir að burðarþolshönnuður gaf út skriflega yfirlýsingu um að ekki þyrfti að styrkja burðarvirki hússins hafi aldrei verið lagðar fram burðarþolsteikningar fyrir þök húsanna, enda hafi það ekki staðið til.

„Það var í sjálfu sér ekki okkar að gefa leyfi fyrir ásteypulagi. Eftir að teikningar frá arkitekt, svokallað hallaplan, lá fyrir gat verktakinn steypt ásteypulagið þegar honum sýndist. Hann þurfti enga heimild frá okkur til þess. Það er ekki rangt að við höfum gefið leyfi til að steypa, en það er rangt að við höfum gefið leyfið án þess að burðarvirkisteikningar lægju fyrir, því við vorum með yfirlýsingu frá burðarþolshönnuði um að burðarþol hússins þyldi aukna þyngd af ásteypuálagi á þökin.“

Efasemdir um burðarþol

Hann segir kröfuna um yfirlýsingu burðarþolshönnuðar ekki hafa orðið til í einhverju tómarúmi, heldur hafi hún komið fram vegna þess að menn voru með efasemdir um að burðarþol þaksins þyldi aukið álag.

En áttir þú ekki sem eftirlitsaðili, sem gætir hagsmuna verkkaupa, að gera athugasemdir við hönnunina?

„Að sjá til þess að húsið sé byggt eftir teikningum og verklýsingum. Ásteypulagið var steypt eftir að yfirlýsing burðarþolshönnuðar lá fyrir. Það stóð aldrei til að teikna burðarvirkisteikningar í sambandi við þakið, enda var burðarvirkinu sem slíku ekki breytt. Ásteypulagið var ekki steypt fyrr en það lágu fyrir samþykktar teikningar af hallaplani og því var ekkert rangt gert þarna af okkar hálfu, ekki neitt.“

Steypuþykktin meiri

Valgeir Berg Steindórsson, löggiltur burðarþolshönnuður hjá Arkamon, mat áhrif breytinga á eldra burðarvirki.

Þar kemur fram að burðarvirkið hafi verið skoðað sjónskoðun ásamt því að kjarnaboruð voru steypusýni og þau brotin hjá Tæknisetri/Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Niðurstaðan var að eldra burðarvirki hússins muni þola þær breytingar sem gerðar voru að uppfylltum skilyrðum.

Skilyrði þessi eru að farið verði eftir hönnunargögnum sem samþykkt hafa verið hjá byggingaryfirvöldum og fyrirmælum í útboðsgögnum framkvæmdanna sem og fyrirmælum er lúta að burðarvirki.

Við mælingu kom í ljós að þykkt á ásteypulagi er að meðaltali 130 mm en í verklýsingu kemur fram að þykkt eigi að vera 15-100 mm.

Höf.: Óskar Bergsson