Sigrún Sigurðardóttir fæddist í Hafnarfirði 15. september 1935. Hún lést 30. maí 2025.

Sigrún var eitt af 11 börnum hjónanna Jennýjar Ágústsdóttur húsmóður og Sigurðar Eiríkssonar vélstjóra.

Eiginmaður Sigrúnar var Kristján Þórðarson, f. 13. október 1928, d. 2006. Þau eignuðust sex börn: 1) Guðrún. f. 18. október 1954, d. 16. mars 1956. 2) Rósa, f. 1955, maki Benedikt Kristjánsson, f. 1953, börn þeirra eru a) Kolbrún, f. 1978, maki Haukur Agnarsson, f. 1977, þau eiga þrjú börn, b) Kristján, f. 1980, í sambúð með Sigrúnu Birnu Sigurðardóttur, f. 1992, Kristján á eina dóttur og fjögur stjúpbörn, c) Kristrún, f. 1988, maki Ari Ólafsson Thorlacius, f. 1986, þau eiga fjögur börn. 3) Fjóla, f. 19. febrúar 1959, maki Jón Trausti Harðarson, f. 1956, börn þeirra eru a) Sigrún, f. 22.11. 1980, d. 15.5. 1981, b) Trausti, f. 1982, maki Sigríður Svava Sigurgeirsdóttir, f. 1984, þau eiga þrjú börn, c) Hildur, f. 1986, maki Björgvin Sveinn Stefánsson, f. 1986, þau eiga þrjá drengi, d) Elín Rún, f. 1994, maki Þórður Arnar Árnason, f. 1995, þau eiga tvö börn. 4) Kristján, f. 7. mars 1960, maki Borghildur Kjartansdóttur, f. 1960. Dóttir Kristjáns er Kristel, f. 1979, maki Andrew Hutchings, f. 1973, og eiga þau tvö börn. Börn Kristjáns og Borghildar eru: a) Daði, f. 1984, maki Linda Björk Lárusdóttir og eiga þau þrjú börn, b) Bjarki, f. 1990, maki Ingunn Embla Kjartansdóttir, þau eiga eina dóttur og einnig á Bjarki dóttur fyrir, c) Fanney, f. 1991, maki Páll Halldór Georgsson og eiga þau tvær dætur, d) Laufey, f. 1995, maki Henning Jónasson, f. 1983, og eiga þau tvo syni. 5) Sigurþór, f. 13.2. 1962, d. 15.9. 1996, maki Guðrún Bríet Gunnarsdóttir, f. 23. febrúar 1961, börn þeirra eru a) Gunnar Rúnar, f. 1987, b) Brynjar, f. 1993. Fyrir átti Sigurþór dótturina Hlín, f. 1983, maki Ármann Halldórsson, f. 1981, þau eiga tvö börn. 6) Reynir kerfisfræðingur, f. 1964, maki Soffía Helgadóttir, f. 1966, dætur þeirra eru a) Kristín Fjóla, f. 1990, maki Magni Barðason, f. 1982, þau eiga fjögur börn, b) Sigrún Elva, f. 1996, og c) Helga Soffía, f. 2004.

Sigrún bjó í Hafnarfirði alla sína ævi. Lengst af bjuggu þau hjón á Miðvangi 1. Sigrún byrjaði að sauma fatnað fyrir fastan kúnnahóp meðan hún var heimavinnandi sjómannskona. Einnig vann hún um skeið hjá vinum sínum í versluninni Fjarðarkaupum. Árið 1978 hóf hún nám í tækniteiknun við Iðnskóla Hafnarfjarðar. Eftir að námi lauk vann hún hjá einum kennara sinna, Kristjáni Stefánssyni, síðan í Byggðarverki sem stofnað var 1980. Þar starfaði hún til ársins 1996, m.a. sem launafulltrúi og bókari. Til loka starfsferils síns starfaði hún á móttökudeild öldrunar á Landspítala. Sigrún naut þess að sækja tónleika og hlusta á alls kyns tónlist í eigin safni.

Útför Sigrúnar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 13. júní 2025, og hefst athöfnin klukkan 15.

Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð

hjartans þakkir fyrir liðna tíð

lifðu sæl á ljóssins friðarströnd,

leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.

(Guðrún Jóhannsdóttir
frá Brautarholt)

Elsku mamma, þá er komið að kveðjustund. Hugurinn hefur ferðast víða í landi minninganna undanfarna daga og er það góð tilfinning. Allt sem við höfum upplifað saman og notið í gegnum tíðina.

Í huga mínum er ég fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa átt þig sem mína fyrirmynd. Þakklát fyrir traustið sem þú sýndir mér, fyrir að gefa mér tækifæri á að reyna ýmislegt fyrir mér í lífinu þó þú værir kannski ekki alltaf á sama máli.

Þrautseigja þín í gegnum tíðina er aðdáunarverð. Ég hef alltaf sagt að stærsta og dýrmætasta gjöfin sem þú fékkst í vöggugjöf hafi verið glaðværðin og létta lundin, hláturmildin og fallega brosið. Þú áttir gott með að sjá það jákvæða í fari fólks, naust þess að gleðjast og njóta lífsins í góðra vina hópi. Tónlistin, alls konar, rokk, djass, blús og svo auðvitað fallega íslenska dægurtónlistin. Þú áttir í raun samleið með öllum aldri þegar kom að tónlist. Handverkin þín bera vitni um hversu listræn þú varst, saumaskapur, prjónar að ég tali ekki um bútasauminn sem er þar á meðal.

Það hefur verið tilfinning mín að í sköpuninni hafir þú unnið með þá miklu sorg sem þú geymdir innra með þér, um það var því miður ekki nóg rætt og unnið úr.

Elsku mamma, það er fullvissa mín að við afkomendur þínir eigum þér svo margt að þakka og við erum vel nestuð af þér, stór sem smá. Allt sem þú kenndir okkur lifir með okkur um ókomin ár.

Hafðu þökk fyrir allt og allt, hvíldu í friði.

Hér hvílast þeir, sem þreyttir göngu luku

í þagnar brag.

Ég minnist tveggja handa, er hár mitt struku

einn horfinn dag.

(Steinn Steinar)

Þín dóttir

Rósa.

Ég veit varla hvar ég á að byrja. Ég á svo margar góðar og skemmtilegar minningar af elsku ömmu Sigrúnu að það er erfitt að velja. Amma í grænum krumpusundbol í sólbaði á pallinum með Tinu Turner eða Bee Gees í botni, amma að sauma á mig og vinkonur mínar pils á síðustu stundu fyrir gamlárskvöld, amma að kenna mér (sem er vinstri handar) að prjóna af mikilli þolinmæði eða amma í hláturskasti með sinn innilega og smitandi hlátur. Alltaf til í gleði og glens og mikil selskapskona.

Amma Sigrún hefur alltaf verið svo stór þáttur í mínu lífi og okkar samband svo náið að það er ekki hægt að ná utan um það í stuttri minningargrein. Hennar heimili hefur alla tíð staðið mér og öðrum barnabörnunum opið og í raun öllum okkar vinum. Alveg frá því að ég man eftir mér var hittingur hjá ömmu og afa á föstudögum. Það byrjaði með pylsupartíi en eftir því sem okkur fjölgaði breyttist pylsupartíið í föstudagskaffi. Börn, tengdabörn, barnabörn og síðar barnabarnabörn kíktu í kaffi á Miðvang eftir vinnu á föstudegi og alltaf var boðið upp á kókómjólk og rækjusalat og annaðhvort hjónabandssælu eða vöfflur. Það var svo frábært að enda vinnuvikuna á að heimsækja ömmu og afa og hitta stóran hluta fjölskyldunnar og ég er svo þakklát fyrir það hversu vel amma hélt utan um hópinn sinn.

Fyrir utan þessar reglulegu heimsóknir hef ég alltaf farið mikið í heimsókn til ömmu og við átt gott samband. Hún var alltaf með allt á hreinu. Hvað fólkið hennar var að gera, hvað var að gerast í heimsmálunum, alltaf tilbúin að hlusta og alltaf tilbúin að aðstoða ef það þurfti að sauma eða prjóna eitthvað.

Fyrir nokkrum árum seldi amma Miðvanginn og flutti í Setbergið. Hún flutti í íbúð á neðri hæðinni hjá systur minni, íbúð sem jafnframt er við hliðina á mömmu og pabba og í götunni fyrir ofan mig. Þetta var algjörlega frábært fyrirkomulag, ég gat skotist yfir til ömmu á 10 sekúndum á inniskónum, fengið mér kaffibolla og spjallað um daginn og veginn. Amma rölti svo stundum yfir til mín þegar hún sá mig úti á palli í sólbaði. Sambandið okkar styrktist enn meir við þessa nánu sambúð og fyrir það er ég svo innilega þakklát.

Það er svo margt sem ég er þakklát fyrir í fari ömmu, fyrir okkar nána og góða vinskap og ekki síst fyrir að hafa fengið að hafa hana hjá mér svona lengi. Ég hefði auðvitað vilja hafa hana hjá mér miklu lengur en fæ því víst ekki ráðið. Ég get hins vegar tekið mér ömmu Sigrúnu til fyrirmyndar, haldið í gleðina alla ævi, hlegið og haft gaman og dansað við Bee Gees og Tinu Turner í grænum krumpusundbol.

Kolbrún Benediktsdóttir.

Elsku amma, Það eru svo ótal margar hlýjar minningar sem koma upp í hugann þegar við minnumst þín og söknuðurinn er mikill. Það sem við munum þó allar sakna mest er föstudagskaffið hjá þér, því við höfum aldrei þekkt annað en að vera velkomnar til þín alla föstudaga, eftir skóla eða vinnu, í hjónabandssælu eða vöfflur og kókómjólk. Það var fátt betra en að vera sóttar í skólann, fá okkur kaffi saman og leggjast svo upp í rauða sófann á Miðvanginum og sofna yfir Disney-spólu. Þetta var ómetanlegur tími með þér og fjölskyldunni okkar, sem þú passaðir svo vel upp á.

Áhugi þinn á lífi okkar hefur alltaf verið mikill og eiginlega ótrúlegt með öll þessi börn, barnabörn og barnabarnabörn sem þú áttir hvað þú varst alltaf með á hreinu hvað var að gerast hjá hverjum og einum. Alltaf mundir þú eftir afmælisdögum allra og varst tilbúin með pening í umslagi fyrir hvern og einn. Þú varst líka alltaf til í að aðstoða í hvers kyns hannyrðum, hvort sem það voru prjónaverkefni í skólanum, föt sem þurfti að stytta eða laga, eða gardínur fyrir heimilið okkar. Allar eigum við eitthvað frá þér sem við getum hlýjað okkur við, meira að segja Soffía Rós og Ástrós Lilja eru það heppnar að geta knúsað kolkrabbana sína sem þú bjóst til.

Það eru forréttindi að hafa átt þig sem ömmu og við höldum áfram að finna fyrir styrk þínum og hlýju. Við erum óendanlega þakklátar fyrir allar þær góðu minningar sem við eigum saman og höldum áfram að minnast þeirra með hlýju í hjartanu. Takk fyrir allt, amma – þangað til næst.

Kristín Fjóla, Sigrún Elva og Helga Soffía.

Það er erfitt að setja í orð allt það sem amma Sigrún var fyrir okkur sem elskuðum hana. Hún var miðjan í fjölskyldunni og hlýjan sem umvafði okkur öll.

Það eru ákveðnir dagar, ákveðnir staðir og ákveðnir einstaklingar sem verða að dýrmætum minningum sem fylgja manni um ókomna tíð. Amma Sigrún var einmitt ein af þeim. Hún skapaði heim þar sem kærleikur og einfaldar gleðistundir réðu ríkjum. Fallegan heim sem lifir enn í hjörtum okkar sem vorum það heppin að hafa hana í lífi okkar.

Föstudagskaffið hjá ömmu Sigrúnu var fastur liður frá því að við munum eftir okkur. Þá var stefnan tekin á Miðvang 1, og svo síðar í Þórsberg 6, eftir vinnu og skóla á föstudögum. Þar beið okkar heimili fullt af gleði, kókómjólk og nýbakaðri hjónabandssælu eins og bara amma Sigrún gat gert hana. Föstudagskaffiboðin voru yndisleg stund þar sem fjölskyldan safnaðist saman og naut þess einfaldlega að vera saman.

Minningar um barnslega gleði og frelsi í garðinum hjá ömmu og afa á Miðvangi 1 situr enn skýr í hugum okkar. Garðurinn var algjörlega sér á báti, lítil paradís með stórum palli, túni og hrauni til að fara í ævintýraleiki.

Það sem amma Sigrún skilur líka eftir sig er fallegu handverkin hennar. Þar eru minnisstæðust bútasaumsrúmteppin, sem gerð voru af þolinmæði, elju og ást. Börn og barnabörn fengu slík teppi að gjöf, einstök í útliti og ómetanleg í gildi. Handverk ömmu Sigrúnar er nú dýrmæt fjölskylduafurð sem við munum öll halda upp á og gæta vel.

Elsku amma Sigrún, þú átt stóran hluta af hjörtum okkar allra. Þótt þú sért farin lifir hlýja þín áfram í minningunum og öllu því góða sem þú skilur eftir þig.

Trausti, Hildur og Elín Rún.