Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Unnið var í gær að uppsetningu ýmissa þeirra muna sem þarf í sviðsmyndina á Víkingahátíðina í Hafnarfirði sem þar er nú efnt til í 28. sinn. Nærri 150 manns, Íslendingar og fólk frá öðrum löndum, mæta nú til hátíðarinnar sem er hugsuð sem fjölskylduskemmtun og hefur alltaf verið þannig að inntaki.
Handverk, eldsmíði og jurtalitun eru meðal þess sem bryddað er upp á hátíðinni. Þar eru einnig bogfimi og axarkast auk þess sem seldur er ýmis varningur og veitingar, hátíðinni til eflingar.
„Víkingaöldin er tímabil sem alltaf heillar mig; saga kappanna sem fóru um lönd af miklu kappi og rændu og rupluðu,“ segir Hrafn Heiðarsson, einn þeirra sem taka þátt í hátíðinni nú. Hljómsveitir frá Danmörku og Úkraínu taka þátt í hátíðinni nú, þar sem annars er í heiðri höfð menning, bardagalist og handverk víkingatímans. Þátttakendur á hátíðinni koma frá Norðurlandaríkjunum öllum, Bretlandi, Bandaríkjunum og Ástralíu svo nokkur lönd séu nefnd.
„Víkingafélög um heim allan starfa saman; miðla og deila þekkingu um þennan stórbrotna tíma sem var fyrir þúsund árum,“ segir Jökull Tandri Ámundason, jarl Rimmugýgjar. Hann er forsprakki félagsins sem stendur að hátíðinni. Sú hefst í dag og lýkur 18. júní.