Lögreglan í borginni Ahmedabad í vesturhluta Indlands sagði í gærkvöldi að minnst 265 manns hefðu farist þegar farþegaþota hrapaði þar skömmu eftir flugtak. 242 voru um borð í vélinni og fórust allir nema einn af farþegum hennar í slysinu
Lögreglan í borginni Ahmedabad í vesturhluta Indlands sagði í gærkvöldi að minnst 265 manns hefðu farist þegar farþegaþota hrapaði þar skömmu eftir flugtak. 242 voru um borð í vélinni og fórust allir nema einn af farþegum hennar í slysinu. Þá létust 24 á jörðu niðri, en vélin hrapaði í íbúðahverfi og skall á gistiheimili fyrir lækna og fjölskyldur þeirra. Rannsókn á tildrögum slyssins er hafin. » 13