TM-mótið í knattspyrnu, betur þekkt sem Pæjumótið, hófst í Vestmannaeyjum í gær og lýkur á morgun, laugardag. Mótið fer nú fram í 35. skiptið en þar etja kappi um 1.000 stelpur í 6. flokki. Keppendum er boðið upp á þétta dagskrá eftir leiki hvers dags
TM-mótið í knattspyrnu, betur þekkt sem Pæjumótið, hófst í Vestmannaeyjum í gær og lýkur á morgun, laugardag. Mótið fer nú fram í 35. skiptið en þar etja kappi um 1.000 stelpur í 6. flokki.
Keppendum er boðið upp á þétta dagskrá eftir leiki hvers dags. Þar er helst að nefna bátsferðir og hæfileikakeppni. Miðað við veðurspá er útlit fyrir ágætisveður um helgina. Búist er við að hitastigið verði um og yfir 10 gráður en þó nokkuð vindasamt. Sama hvernig fer þá má búast við mikilli gleði í Vestmannaeyjum um helgina, líkt og sjá mátti á fyrstu leikjunum í gær.