Jón Óttar Ólafs­son hef­ur kært Ólaf Þór Hauks­son héraðssak­sókn­ara til lög­reglu fyr­ir rang­ar sak­argift­ir um trúnaðar­brot í máli árið 2012, en þá gegndi Ólaf­ur embætti sér­staks sak­sókn­ara. Rík­is­sak­sókn­ari felldi málið niður snemma árs 2013
Kærður Ólafur Þór Hauksson, áður sérstakur saksóknari eftir hrun.
Kærður Ólaf­ur Þór Hauks­son, áður sér­stak­ur sak­sókn­ari eft­ir hrun.

Andrés Magnús­son

andres@mbl.is

Jón Óttar Ólafs­son hef­ur kært Ólaf Þór Hauks­son héraðssak­sókn­ara til lög­reglu fyr­ir rang­ar sak­argift­ir um trúnaðar­brot í máli árið 2012, en þá gegndi Ólaf­ur embætti sér­staks sak­sókn­ara. Rík­is­sak­sókn­ari felldi málið niður snemma árs 2013.

Kær­and­inn Jón Óttar starfaði sem lög­reglu­full­trúi hjá embætti sér­staks sak­sókn­ara árin eft­ir hrun uns hann lét af störf­um í upp­hafi árs 2012, en sinnti þó nokkru leng­ur verk­efn­um fyr­ir embættið sem sér­fræðing­ur í verk­töku. Ólaf­ur Þór kærði hann fyr­ir brot á þagn­ar­skyldu þá um vorið.

Í kæru sinni til lög­reglu­stjór­ans á Vest­ur­landi tí­und­ar Jón Óttar, sem ný­lega barst í frétt­ir af svo­nefndu njósna­máli, að sér­stak­ur sak­sókn­ari hafi lagt fram kæru á hend­ur sér gegn betri vit­und, kær­an hafi verið röng og byggð á rang­færðum samn­ingi, sem sak­sókn­ari hafi sjálf­ur út­búið. Hins veg­ar hafi sér­stak­ur sak­sókn­ari látið hjá líða að

...