Ásta Sigríður Hannesdóttir fæddist 10.3. 1929. Hún lést 30.5. 2025.
Útför Ástu fór fram 10. júní 2025
Soroptimistasamtökin eru alþjóðleg samtök kvenna úr ýmsum starfsgreinum sem vinna að hvers kyns góðgerðarstarfsemi í samfélaginu og er fyrsta markmið samtakanna að vinna að bættri stöðu kvenna. Samtökin voru stofnuð í Kaliforníu 1921 og breiddust þaðan út um heiminn. Hreyfingin kom til Íslands árið 1959 þegar 18 konur stofnuðu Soroptimistaklúbb Reykjavíkur.
Soroptimistaklúbbarnir eru starfsgreinaklúbbar og þar eru konur með margvíslegan bakgrunn. Ásta var snyrtisérfræðingur og hafði að baki nám í snyrtifræði og fótaaðgerðum 1969, í snyrtiráðgjöf frá Revlon Institute í London 1970 og alþjóðlegt próf í snyrtifræði frá Mónakó 1977. Hún rak hárgreiðslu- og snyrtistofuna Kristu um langt árabil. Hún var félagi í Félagi íslenskra snyrtisérfræðinga frá 1968 og formaður þar 1971-1975 og formaður í sameinuðu félagi starfsgreinarinnar 1983-85. Hún varð heiðursfélagi í Félagi íslenskra snyrtifræðinga 1999.
Ásta gekk til liðs við Soroptimistaklúbb Reykjavíkur árið 1978 og var elsti félagi í klúbbnum þegar hún féll frá 96 ára að aldri. Hún tók virkan þátt í starfsemi klúbbsins og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Hún var meðal annars meðstjórnandi 1982-83 og 1988-1989 og formaður klúbbsins 1989-1991. Í fjáröflunarnefnd var hún 1981-1983 og í ýmsum öðrum nefndum á vegum klúbbsins. Ásta varð heiðursfélagi Soroptimistaklúbbs Reykjavíkur árið 2014.
Ásta átti einnig annan streng í hörpu sinni en það var söngurinn. Hún söng um árabil í kór eldri kvenna sem nefnist Senjoríturnar og söng þar mezzó-rödd.
Við klúbbsystur í Soroptimistaklúbbi Reykjavíkur kveðjum nú Ástu Hannesdóttur og þökkum henni allt hennar framlag til starfsemi klúbbsins. Jafnframt sendum við fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur.
F.h. Soroptimistaklúbbs Reykjavíkur,
Erla Ragnarsdóttir, formaður.