María Rut Kristinsdóttir
María Rut Kristinsdóttir
Nýr íslenskur raunveruleikaþáttur hefur hafið göngu sína á Íslandi. Hann má finna á rás númer sautján á öllum helstu myndlyklum, Alþingisrásinni. Þar geta landsmenn fylgst með hinum ýmsu tilþrifum þingmanna í ræðustól Alþingis

Nýr íslenskur raunveruleikaþáttur hefur hafið göngu sína á Íslandi. Hann má finna á rás númer sautján á öllum helstu myndlyklum, Alþingisrásinni. Þar geta landsmenn fylgst með hinum ýmsu tilþrifum þingmanna í ræðustól Alþingis. Þar er að finna allt það sem einkennir gott raunveruleikasjónvarp. Spennu, drama, átök, upphrópanir, litríka karaktera og óvæntar uppákomur með magnþrunginni stemningu.

Við þekkjum nú þegar seríuna um áföstu tappana og fríverslunarsamninginn við Taíland. En það nýjasta úr smiðju minnihlutans er æsispennandi raunveruleikaþáttur um hina margrómuðu Bókun 35 sem nú er í loftinu. Þar fá landsmenn djúpa innsýn í hugarheim miðflokksmannsins og fylgitungla hans, sjálfstæðismanna og framsóknarmanna. Sem hafa nú, þegar þessi grein er rituð, rætt málið í rúman sólarhring í annarri umræðu. Sérstaklega fannst mér áhugaverð umræðan á milli sjöttu og sjöundu ræðu Sigmundar Davíðs og Bergþórs Ólasonar sem átti sér stað á Alþingi um klukkan 01:16 aðfaranótt föstudagsins 13. júní. Þar steig Bergþór Ólason í pontu undir liðnum fundarstjórn forseta og vildi fá á hreint hversu lengi forseti hygðist halda umræðum gangandi inn í nóttina. Sigmundur Davíð mætti og tók undir og sagði að ef ætlunin væri að tala að næturlagi væri óhjákvæmileg afleiðing af því að hann yrði að ítreka daginn eftir það sem hann segði að næturlagi – því almenningur ætti rétt á að hafa tækifæri til að fylgjast með umræðunni. Steig þá Ásthildur Lóa Þórsdóttir í pontu og benti miðflokksmönnum á að áhyggjurnar væru tilefnislausar. Að hægt væri að horfa á allar umræður á vefnum og spóla til baka. Þá mætti Bergþór aftur í pontu og lýsti því yfir að hann hefði fengið skilaboð um það að þetta væri hið nýja „Love Island“. Fólk hefði því væntingar um að umræðan héldi áfram um sinn. Fyrir þau sem ekki þekkja er Love Island vinsæll raunveruleikaþáttur þar sem ókunnugt fólk býr saman á sólríku setri og binst þar ástarböndum.

Þarna urðu straumhvörf í umræðunni. Það rann upp fyrir mér að ég, stjórnarþingmaðurinn, væri í reynd hluti af raunveruleikasjónvarpi Miðflokksins. Og kynnti mig til leiks sem karakter í þáttunum. Ég benti reyndar á að raunveruleikaþættir ættu það til að verða langdregnir og því væri gott ráð að komast fljótt að niðurstöðu um afdrif mála.

Ljóst er að þáttaserían um ástareyjuna heldur líklega áfram. En örvæntið eigi. Það er von á spánnýjum raunveruleikaþætti eftir helgi; Auðlindastríð – í anda Piparsveinsins margrómaða (e. The Bachelor), þar sem minnihlutaþingmenn munu keppast um hylli stórútgerðarinnar.

Höfundur er þingmaður Viðreisnar. mariarut@althingi.is

Höf.: María Rut Kristinsdóttir