Norður
♠ 1063
♥ 754
♦ 962
♣ ÁK43
Vestur
♠ G872
♥ ÁKG
♦ 87
♣ DG108
Austur
♠ 954
♥ 62
♦ D10543
♣ 972
Suður
♠ ÁKD
♥ D10983
♦ ÁKG
♣ 65
Suður spilar 4♥.
Það skiptir máli við spilaborðið að vera vakandi fyrir tækifærum til að afvegaleiða andstæðingana.
Í sveitakeppni gengu sagnir eins við bæði borð: 1♥-2♥-4♥. Út kom ♣D sem sagnhafi drap með ás í borði og spilaði hjarta á tíuna heima.
Við annað borðið drap vestur á sjálfstýringu með gosanum og spilaði ♣G. Nú vissi sagnhafi að hann yrði gefa tvo slagi í viðbót á tromp. Hann notaði því innkomuna í blindan til að spila tígli á gosann og þegar hann hélt gat sagnhafi lagt upp 10 slagi, gaf aðeins á ás og kóng í trompi.
Við hitt borðið sá vestur að hann gæti ekki tapað á að drepa ♥10 með kóngnum og spila laufi. Og inni í blindum á ♣K spilaði sagnhafi eðlilega hjarta á níuna. En þá dró vestur ♥G upp úr pússi sínu og tók ♥Á og sagnhafi varð að gefa vörninni á ♦D í fyllingu tímans.