Málfríður Heiðrós Jónsdóttir fæddist 29. desember 1934 í Heiðarhúsum, Þelamörk í Hörgárdal. Hún lést á heimili sínu, Lögmannshlíð á Akureyri, sunnudaginn 1. júní 2025.
Foreldrar hennar voru Jón Árelíus Þorvaldsson, f. 8. nóvember 1899 á Þinghóli í Kræklingahlíð, d. 12. febrúar 1976, og Ólafía Valgerður Hálfdánardóttir, f. 21. október 1901 á Vatnsleysu í Kræklingahlíð, d. 22. september 1992.
Málfríður giftist Regin Bergþóri Árnasyni, f. 22. júlí 1924, d. 2. maí 2008, þann 7. nóvember 1954 á Möðruvöllum í Hörgárdal. Börn Málfríðar og Regins eru: 1) Regína Þorbjörg, f. 2. september 1954, börn hennar eru: Freyr Hólm Ketilsson, maki hans er Ólöf Harpa Halldórsdóttir. Reginn Hólm Ketilsson. Sigurlaug Sigurðardóttir. Málfríður Sigurðardóttir, látin. 2) Valgerður Jakobína, f. 1. apríl 1957, dætur hennar eru: Elín Jakobína Valgerðardóttir. Malla Rós Valgerðardóttir, maki hennar er Jón Ingimundarson. Lára María Valgerðardóttir, maki hennar er Eiríkur Þorsteinsson. 3) Árni Jón, f. 11. apríl 1962, maki hans er Ágústa Pálsdóttir og börn þeirra: Heiða Björk Árnadóttir, maki hennar er Leó Stefánsson. Guðrún Rós Árnadóttir. Barna- og barnabarnabörn þeirra eru nú orðin 20 talsins.
Málfríður hlaut hefðbundna skólagöngu þess tíma. Hún vann á sínum yngri árum ýmis störf en lengst af vann hún á Prjónastofunni Heklu og síðast hjá Heimaþjónustu Akureyrarbæjar.
Útför Málfríðar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 18. júní 2025, klukkan 13.
Ilmurinn af nýbökuðu jógúrtkökunum sem mætti manni í anddyrinu í Dalsgerði og síðar í Tjarnarlundi litar minningar barnæsku okkar. Amman okkar, sem lék við hvurn sinn fingur í bakstrinum, dyttaði að hinu og þessu oft með svuntu og sá til þess að alltaf voru til íspinnar í frystikistunni.
Það var svo óendanlega gott að koma til ömmu og afa. Útbreiddum föðmum þeirra fylgdi svo mikil hlýja og öryggi. Ferðast var norður öll sumur, en þó við systur séum fæddar og uppaldar í Reykjavík hefur Akureyri alltaf verið okkar annar heimabær. Við lékum mikið úti með ömmu og gengum yfir í Hrísalund á markaðinn. Farnar voru heimsóknir til systkina hennar, en amma var sú síðasta úr samheldnum systkinahópnum til að yfirgefa þessa tilveru, og það er fallegt að hugsa til þess að nú séu þau sameinuð.
Amman okkar var dugnaðarforkur, stálminnug, glettin og afskaplega umhugað um þarfir annarra áður en hugað var að eigin. Ófá eru skiptin sem hún bar fram dýrindismat, en átti sjálf voðalega erfitt með að setjast niður og njóta sjálf. Oft heyrðist hún segja fleyga setningu sem mamma hennar sagði svo oft: „Svona, reynið nú að nota ykkur þetta.“ Já, það gerðum við svo sannarlega!
Fjölmargar eru minningar af söngstundum og dönsum, sem í fyrstu samanstóðu af okkur ofan á tánum á henni. Íslenskar dægurlagaperlur ómuðu úr græjunni hans afa og sungið var hástöfum með. Þvílíkt sem við nutum þessara stunda. Ófá voru einnig símtölin milli heiða þar sem sungið var saman gegnum símtólið. Amma skrifaði okkur líka bréf og sendi reglulega með póstinum sem við kunnum heldur betur að meta.
„Já, það er margs að minnast“, eins og elsku amman okkar orðaði það svo vel í síðasta spjalli okkar systra við hana. Spjallið þá, sem eins og svo oft áður, snerist að mestu um gamla góða tíð hennar og uppvöxtinn. Við búum vel eftir öll þessi dýrmætu samtöl í gegnum árin og erum sérstaklega þakklátar fyrir að hafa farið oft til hennar síðustu mánuðina.
Henni þótti undurvænt um okkur og langömmubörnin sín. Það var sannarlega gagnkvæmt. Langömmubörnin fengu dýrmætar stundir með ömmömmu sinni, eins og það elsta kallaði hana á fyrstu árunum sínum og fylgdi henni svo í hugum og tali næstu þriggja. Við fórum mjög reglulega til Akureyrar, bílveik börn eða ekki, snjór og bylur eða ekki. Enda samstiga í mikilvægi þess að veita langömmubörnunum sem flest tækifæri til að njóta samveru með þessari dýrmætu konu. Hún gerði líf okkar sem eldri erum sannarlega ríkara og það var okkur bæði ljúft og skylt að standa ekki í vegi fyrir að þess yrði einnig notið í tilfellum þeirra yngri. Missir þeirra er mikill en líkt og Reginn afi, sem ekkert þeirra fékk því miður að hitta í raunheimi, mun amman okkar aldrei hætta að vera mikilvæg manneskja í okkar lífi.
Við erum þér óendanlega þakklát, fyrir lífið þitt og tilveru alla. Þú auðgaðir líf okkar, þú gafst okkur svo mikið og skilur eftir þig ljúfar og hlýjar minningar sem munu lifa áfram í hjörtum okkar allra.
Lengri grein á
www.mbl.is/andlat/minningar
Þínar,
Elín Jakobína, Malla Rós og Lára María Valgerðardætur.
Elsku amma, Málfríður Heiðrós Jónsdóttir, kvaddi þennan heim sunnudaginn 1. júní síðastliðinn. Hún skilur eftir sig börnin sín þrjú og stóran hóp ömmu- og langömmubarna sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp undir verndarvæng hennar.
Amma lifði tímana tvenna eins og allir af hennar kynslóð. Hún var fædd í og nefnd eftir Heiðarhúsum, torfbæ með hlóðaeldhúsi á Þelamörk í Hörgársveit. Þau fjölskyldan bjuggu á ýmsum bæjum í Eyjafirði áður en langamma og langafi, Óla amma og Jón afi, eignuðust sína eigin jörð að Tréstöðum. Sú veröld sem amma ólst upp í var að mörgu leyti fjarlæg reynsluheimi stúlkna sem fæddust um miðjan níunda áratuginn og um leið afar heillandi. Nú er þessi beina tenging við gamla tímann horfin og við sjáum eftir öllum spurningunum sem ekki voru bornar upp um þennan tíma og upplifanir ömmu. Tengingin við sveitina fyrir norðan lifir þó á einhvern hátt áfram í nafni langömmubarnsins og nöfnu hennar ömmu, Nínu Heiðrósar.
Við þessi tímamót leita ýmsar minningar fram í hugann, bæði nýlegar og eldri. Það er ómetanlegt að hafa fengið tækifæri til að fagna með ömmu á 90 ára afmælinu í desember síðastliðnum. Þar var sungið og þar var kátt í koti, eins og hæfði tilefninu. Upp í hugann koma líka ótal minningar af ömmu syngjandi, ýmist einni á seinni árum, eða af þeim afa saman að dansa og syngja í Dalsgerðinu og Tjarnarlundinum. Þegar við systur bjuggum í Danmörku á fyrstu árum okkar sendi amma okkur líka, ásamt frænkum og frændum heima á Íslandi, kassettu með söng og sögum sem mikið var hlustað á. Í augum barnsins var amma alltaf svo falleg og glæsileg, en líka hlý og innileg. Heimsóknir til Möllu ömmu og Regins afa norður á Akureyri einkenndust af hlýjunni sem umlék okkur um leið og við stigum inn um dyrnar. Í minningunni var alltaf veisla hjá ömmu, margar kökusortir, nóg til og endalaust veitt. Hún hafði mikla trú á getu okkar til að borða óheyrilegt magn af kökum og við gerðum að sjálfsögðu okkar besta til að standa undir því.
Amma var alltaf ósérhlífin, gekk rösk til verka og rak sín heimili af miklum myndarskap. Hjá ömmu virtist allt hafa sinn stað og sína stund og því fylgdi einhvers konar dýrmæt ró. En hún var líka einstaklega skörp, félagslynd og létt í lund. Hún gat verið glettin og beindi því jafnt að sjálfri sér og öðrum. Hún var líka einstaklega næm og í góðum tengslum við þær hliðar tilverunnar sem ekki eru eins áþreifanlegar og auðskiljanlegar. Hún sýndi því sem við systur tókum okkur fyrir hendur ávallt áhuga og hafði oft á orði hversu örar breytingar hefðu átt sér stað á hennar lífstíð. Amma var á marga máta brú milli tveggja heima og við nutum góðs af því. Hún var stolt af afkomendum sínum og þótti mikið til um öll þau tækifæri sem stóðu okkur til boða. Við systur fundum iðulega hversu sterkur strengurinn var á milli okkar þó að oft væri fjarlægðin mikil. Nú er elsku amma búin að fá hvíldina. Við trúum því að hún sé komin aftur til Regins afa, sem hún saknaði svo mjög síðustu árin. Þar verður henni vel tekið.
Guðrún Rós og Heiða Björk Árnadætur.