Lögregla Frá aðgerðinni á Raufarhöfn.
Lögregla Frá aðgerðinni á Raufarhöfn.
Lögreglan framkvæmdi húsleit á nokkrum stöðum á landinu í gær í tengslum við rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu. Aðgerðirnar voru m.a. á Raufarhöfn og í Borgarnesi

Lögreglan framkvæmdi húsleit á nokkrum stöðum á landinu í gær í tengslum við rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu. Aðgerðirnar voru m.a. á Raufarhöfn og í Borgarnesi.

Kaupmaður á Raufarhöfn kvað mikinn hasar hafa verið í þessu litla samfélagi í Norðurþingi þegar fimm lögreglubifreiðar óku í hlað gamla leikskólans í bænum, sem nú er íbúðarhús, og fjöldi lögreglumanna réðst til inngöngu.

Íbúi, sem ræddi nafnlaust við mbl.is í gærkvöldi, kvað marga hafa klórað sér í höfðinu þegar húsið var selt fyrir nokkrum árum og sá kvittur gekk að þar ætlaði aldraður maður sér að búa einn þar til dauðans óvissi tími vitraðist honum.

„Þetta fór fljótlega að verða svolítið skrýtið,“ segir íbúinn, „fólk fór fljótlega að taka eftir því að það var alltaf bíll sem kom einu sinni í mánuði um nótt og var svo farinn eldsnemma morguns. Eftir þessu var tekið og þetta var eins og vaktaskipti.“ » 8