Undrabrekka Nýr leikskóli verður brátt byggður á Seltjarnarnesi.
Undrabrekka Nýr leikskóli verður brátt byggður á Seltjarnarnesi. — Tölvumynd/Andrúm arkitektar
„Þarna getum við sameinað alla leikskólastarfsemina á einum stað. Hún hefur verið dálítið dreifð,“ segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Seltjarnarnesbær hefur auglýst útboð vegna byggingar nýs leikskóla við Suðurströnd

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Þarna getum við sameinað alla leikskólastarfsemina á einum stað. Hún hefur verið dálítið dreifð,“ segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.

Seltjarnarnesbær hefur auglýst útboð vegna byggingar nýs leikskóla við Suðurströnd. Frestur til að skila tilboðum er til 18. júlí en gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist með haustinu. „Þetta mun taka tvö ár í byggingu. Við finnum heppilegan tíma til að taka fyrstu skóflustungu með krökkunum á leikskólanum,“ segir bæjarstjórinn.

Ný leikskólabygging á að kallast Undrabrekka og verður um 1.700 fermetrar að stærð. Jafnframt á að nýta þær byggingar sem fyrir eru á svæðinu og tengja þær saman.

Haldin var hönnunarsamkeppni um byggingu nýs leikskóla árið 2018 sem Andrúm arkitektar unnu og var vinningstillagan svo þróuð áfram.

Útboði var frestað í haust

Til stóð að bjóða byggingu leikskólans út síðasta haust og átti framkvæmdum þá að ljúka í lok þessa árs. Fyrirhuguðu útboði var frestað og sagði Þór bæjarstjóri við það tækifæri í viðtali við Morgunblaðið að fulltrúar meirihlutans teldu ekki heppilegt að bjóða út verkið í þáverandi hávaxtaumhverfi.

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon