Hörður Svavarsson leikskólastjóri Aðalþings lést á krabbameinsdeild Landspítalans 19. júní eftir skamma sjúkrahúslegu, 65 ára að aldri. Hörður fæddist 15. janúar 1960 í Reykjavík. Foreldrar hans voru þau Svavar Gests hljóðfæraleikari og María Steingrímsdóttir húsmóðir

Hörður Svavarsson leikskólastjóri Aðalþings lést á krabbameinsdeild Landspítalans 19. júní eftir skamma sjúkrahúslegu, 65 ára að aldri.

Hörður fæddist 15. janúar 1960 í Reykjavík. Foreldrar hans voru þau Svavar Gests hljóðfæraleikari og María Steingrímsdóttir húsmóðir. Hörður ólst upp í Reykjavík en bjó í Hafnarfirði í á þriðja áratug með konu sinni Díönu Sigurðardóttur. Saman eiga þau dótturina Guðrúnu Eddu Min, en einnig á Hörður dótturina Maríu Eldeyju. Þá ólst upp hjá Herði sonur Díönu, Pétur Ágúst Hjörleifsson, en Hörður á einnig uppeldisdótturina Margréti Heiði Jóhannsdóttur. Systkini Harðar eru Hjördís, Gunnar, Máni, Nökkvi og Bryndís, sem er látin.

Hörður gekk í Ísaksskóla, síðar í Hlíðaskóla, en lauk námi við Fósturskóla Íslands. Hann lauk síðar meistaranámi frá Háskóla Íslands í menntavísindum og var lokaverkefni hans um rými barna í leikskólum. Fjölmargir, á alþjóðavísu, sóttust eftir umfjöllun um niðurstöður rannsóknarinnar „Börnin í veggjunum“. Hörður starfaði um árabil í leikskólum í Reykjavík en hóf síðar útgáfustarf á tímaritinu Uppeldi auk smárita um uppeldismál og starfaði við það fram yfir aldamótin. Þá hóf Hörður störf sem meðferðar- og vímuefnaráðgjafi hjá SÁÁ.

Hörður hóf störf sem leikskólastjóri í Aðalþingi í Kópavogi fyrir nær 15 árum en leikskólinn Aðalþing er rekinn í anda hugmyndafræði Loris Malaguzzi, sem oftast er kennd við bæinn Reggio Emilia á Ítalíu. Hörður hélt víða erindi og fyrirlestra, hérlendis sem erlendis, á ráðstefnum um hugmyndafræðina. Þá hlaut Aðalþing Íslensku menntaverðlaunin 2021 og Orðsporið 2022 og hlaut nýlega veglegan styrk til að þróa nýtt innra matskerfi sem nýtir gervigreind. Allt þetta var hugarfóstur Harðar í leik og starfi.

Hörður var lengi vel formaður Íslenskrar ættleiðingar og formaður fimleikafélagsins Bjarkar í Hafnarfirði. Þá sat hann í forvarnarnefnd Hafnarfjarðar og Fræðsluráði Hafnarfjarðar, var virkur félagi í FÁR, félagi áfengis- og vímuefnaráðgjafa, auk þess að taka þátt í ýmsum öðrum félagsstörfum innan samfélags leikskólakennara.