Flúðir Ný heilsugæsla ásamt apóteki verður opnuð á Flúðum í haust.
Flúðir Ný heilsugæsla ásamt apóteki verður opnuð á Flúðum í haust. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heilsugæsla verður opnuð á Flúðum í Hrunamannahreppi næsta haust í fyrsta sinn. Jón Bjarnason, forseti bæjarstjórnar Hrunamannahrepps, segir í samtali við Morgunblaðið að það sé sérstaklega ánægjulegt að samhliða opnun heilsugæslunnar verði opnað apótek á staðnum

Tinna Björt Jónsdóttir

tbj@mbl.is

Heilsugæsla verður opnuð á Flúðum í Hrunamannahreppi næsta haust í fyrsta sinn. Jón Bjarnason, forseti bæjarstjórnar Hrunamannahrepps, segir í samtali við Morgunblaðið að það sé sérstaklega ánægjulegt að samhliða opnun heilsugæslunnar verði opnað apótek á staðnum. „Við tókum frá rými í sama húsnæði fyrir apótekið á Flúðum, þannig að íbúar geta nú sótt heilsugæsluna og keypt t.a.m. lyf á sama stað. Þetta hefur jákvæð áhrif á allt nærumhverfið,“ segir hann.

Heilsugæslan verður í miðbæ Flúða í húsnæði sem sveitarfélagið keypti fyrir tveimur árum. Eftir að fréttist af kaupunum hafði Heilbrigðisstofnun Suðurlands samband og sýndi áhuga á húsnæðinu. „Við erum að vinna með Framkvæmdasýslunni að innrétta húsnæðið í samræmi við nútímakröfur. Þetta verður virkilega flott og vandað húsnæði,“ segir Jón. Hann gerir ráð fyrir að fastráðinn læknir verði áfram á staðnum eins og verið hefur í Laugarási, enda sé um að ræða tilfærslu á starfsemi um nokkra kílómetra. Samfélagið bíður opnunarinnar með mikilli tilhlökkun en einnig er hafin vinna við nýja björgunarmiðstöð á svæðinu. Sú miðstöð gæti bætt viðbragð sjúkra- og slökkvibifreiða, sérstaklega í ljósi töluverðrar umferðar ferðamanna um uppsveitir Árnessýslu.

„Viðbragðstími mun styttast og öryggi aukast á svæðinu. Við erum full tilhlökkunar hér,“ segir Jón að lokum.

Höf.: Tinna Björt Jónsdóttir