Hagfræðin Dr. Ragnar Árnason, prófessor emeritus í fiskihagfræði, segir að hugtakið „auðlindarenta“ sé pólitískt hugtak fremur en hagfræðilegt.
Hagfræðin Dr. Ragnar Árnason, prófessor emeritus í fiskihagfræði, segir að hugtakið „auðlindarenta“ sé pólitískt hugtak fremur en hagfræðilegt. — Morgunblaðið/Ómar
Ragnar Árnason, fv. prófessor í fiskihagfræði, gefur lítið fyrir tal um auðlindarentu við álagningu veiðigjalda og segir notkun þess tilraun til að villa um fyrir fólki. Hann telur að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi verið leidd á villigötur um það af óvönduðum ráðgjöfum

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Ragnar Árnason, fv. prófessor í fiskihagfræði, gefur lítið fyrir tal um auðlindarentu við álagningu veiðigjalda og segir notkun þess tilraun til að villa um fyrir fólki. Hann telur að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi verið leidd á villigötur um það af óvönduðum ráðgjöfum.

„Orðið „auðlindarenta“ er notað í pólitískri og stundum óvandaðri hagfræðilegri umræðu,“ segir Ragnar í samtali við Morgunblaðið.

Hugtakið „hagræn renta“ sé til í hagfræði, en hún stafi af öllum framleiðsluþáttum fyrirtækja og ekki unnt að rekja hana til einstakra framleiðsluþátta, eins og vinnuafls, fjármagns eða náttúruauðlinda.

„Það er því einungis tilraun til að villa fólki sýn að kenna rentu eða hagnað í atvinnuvegum við einhvern tiltekinn þátt sem notaður er í framleiðslunni,“ segir Ragnar.

Hann segir enga tæka hagfræðikenningu að baki ummælum forsætisráðherra eða annarra ráðherra um auðlindarentu af hagnaði.

„Forsætisráðherra hefur greinilega verið leiddur á villigötur af óvönduðum ráðgjöfum.“

Fráleitt sé að nefna tiltekið hlutfall þar sem áhrifa skattlagningar taki fyrst að gæta.

„Öll skattlagning á fyrirtæki – hvaða nafni sem hún kallast – veikir samkeppnisstöðu þeirra miðað við fyrirtæki sem ekki verða fyrir slíkri skattlagningu. Þetta gildir um skattlagningu á meinta hagræna rentu ekki síður en aðra skattlagningu.“

Orð ráðherra

Orðið „auðlindarenta“ er ekki í veiðigjaldafrumvarpinu

Hanna Katrín Friðriksson sagði á þingi að „auðlindarenta innan skynsamlegra marka – sirka 50% talar hagfræðin um – skaðar ekki samkeppnishæfni“

Spurð út í hagfræðilegan grunn auðlindarentu sagði Kristrún Frostadóttir að hún væri „huglægt mat“

Höf.: Andrés Magnússon