— Morgunblaðið/Karítas
Reykjavíkurborg hefur lokað starfsstöð Brúarskóla við Dalbraut sem sinnir viðkvæmum hópi barna og ungmenna á barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL). Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var skólastjóri Brúarskóla kallaður úr sumarfríi í…

Diljá Valdimarsdóttir

dilja@mbl.is

Reykjavíkurborg hefur lokað starfsstöð Brúarskóla við Dalbraut sem sinnir viðkvæmum hópi barna og ungmenna á barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL).

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var skólastjóri Brúarskóla kallaður úr sumarfríi í síðustu viku til að segja upp kennurum starfsstöðvarinnar, sem voru tveir.

Borgin gerði úttekt á Brúarskóla í vetur og voru ráðgjafar fyrirtækisins KPMG sendir til að kanna aðstæður og ræða við kennara. Úttektin var ekki gerð í samráði við BUGL eða Landspítalann.

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hyggjast stjórnendur óska eftir fundi með borginni í vikunni, en fregnir af breytingum bárust ekki fyrr en í síðustu viku.

Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, vildi ekki tjá sig um málið er Morgunblaðið óskaði eftir viðtali en sagði sviðið vera að endurskoða starfsstöðvar Brúarskóla og að verið væri að ganga frá ákveðnum breytingum.

Kannast ekki við málið

Í fjárhagsáætlun borgarinnar sem lögð var fram 31. október 2024 kemur fram að skera ætti framlög til Brúarskóla niður um 30 til 34 milljónir. Ekki komu fram frekari lýsingar á því hvernig niðurskurðurinn yrði útfærður.

Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins og formaður skóla- og frístundaráðs, kannaðist hvorki við lokunina né uppsagnirnar þegar Morgunblaðið leitaði viðbragða. Hún sagði að málið hefði ekki verið rætt á fundum ráðsins. Þá hafði Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skóla- og frístundaráði, heldur ekki heyrt af lokuninni þegar Morgunblaðið sló á þráðinn í gær.

Samkvæmt heimildum blaðsins hefur Landspítalinn ekki fengið svör frá borginni um hvernig og hvar börnin munu stunda nám í haust. Skólaskylda er á Íslandi frá 6 til 16 ára aldurs. Í menntastefnu borgarinnar segir að mikilvægt sé að tryggja jöfn tækifæri og aðgang barna að námi og starfi í samræmi við áhuga þeirra og hæfileika. Í 17. gr. grunnskólalaga segir jafnframt að „nemendur sem að mati læknis geta ekki sótt skóla vegna slyss eða langvarandi veikinda eiga rétt á sjúkrakennslu annaðhvort á heimili sínu eða á sjúkrastofnun“.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri vildi ekki ræða við Morgunblaðið um lokunina en vísaði á einn af upplýsingafulltrúum Reykjavíkurborgar.

Eva Bergþóra Guðbergsdóttir upplýsingafulltrúi hélt því fram að ekkert þjónusturof yrði þrátt fyrir að kennurunum hefði verið sagt upp. » 10

Höf.: Diljá Valdimarsdóttir