Sigríður Björnsdóttir
Sigríður Björnsdóttir
Myndlistarkonan og listmeðferðarfræðingurinn Sigríður Björnsdóttir opnar einkasýningu sína Fótógrömm í dag, þann 3. júlí, kl. 16 til 18 á Mokka þar sem hún sýnir verk frá árinu 1959

Myndlistarkonan og listmeðferðarfræðingurinn Sigríður Björnsdóttir opnar einkasýningu sína Fótógrömm í dag, þann 3. júlí, kl. 16 til 18 á Mokka þar sem hún sýnir verk frá árinu 1959. Segir í tilkynningu að verkin séu unnin með fótógramtækni, ljósmyndaaðferð þar sem ekki sé notast við myndavél heldur séu form eða hlutir lagðir á ljósnæman pappír og ljósi varpað á þá í stuttan tíma. Sigríður hélt sína fyrstu einkasýningu á Mokka 1967 og hefur síðan þá sýnt víða, bæði innanlands og erlendis. „2020 kom út veglegt yfirlitsrit um myndlistarsköpun hennar á tímabilinu 1950–2019, 2023 kom út bókin Art Can Heal um ævistarf hennar sem listmeðferðarfræðings og 2024 kom út bókin Dieter Roth in My Life – Memories þar sem hún deilir persónulegum minningum frá hjónabandi sínu með listamanninum Dieter Roth.“