Nýtt frumvarp um breytingar á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga felur í sér kaldar kveðjur til íbúa í Suðvesturkjördæmi, að mati fjögurra bæjarstjóra í kjördæminu.
Þau Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar segja í aðsendri grein í blaðinu að þegar áhrif frumvarpsins á einstök sveitarfélög séu skoðuð komi í ljós að samanlögð áhrif breytinganna í frumvarpinu séu neikvæð um 1,5 milljarða króna fyrir sveitarfélögin í Kraganum.
Kemur fram í grein þeirra að frumvarpið refsi þeim sveitarfélögum sem ekki hafi útsvar sitt í hámarki, þar sem greiðslur til þeirra séu skertar. Þá sé einnig um að ræða skerðingu á almennu jöfnunarkerfi sjóðsins. Skora sveitarstjórarnir á þingmenn kjördæmisins að greiða atkvæði gegn frumvarpinu. » 21