Stjórnir Kviku banka og Arion banka hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja formlegar samrunaviðræður milli félaganna. Kvika hefur jafnframt hafnað beiðni Íslandsbanka um að hefja samrunaviðræður

Stjórnir Kviku banka og Arion banka hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja formlegar samrunaviðræður milli félaganna. Kvika hefur jafnframt hafnað beiðni Íslandsbanka um að hefja samrunaviðræður. Þetta kom fram í tilkynningu til Kauphallarinnar seint í gærkvöldi.

Samkvæmt viljayfirlýsingunni er gert ráð fyrir að viðskiptagengið í væntum samruna verði 19,17 krónur á hvern hlut í Kviku og 174,5 krónur á hlut í Arion banka. Gangi samruninn eftir munu hluthafar Kviku eignast 485 milljónir nýrra hluta í sameinuðu félagi, sem jafngildir 26% hlutafjár.

„Búist er við að viðræðurnar muni fara fram á næstu vikum og verður nánar upplýst um framvindu þegar ástæða er til og í samræmi við lögbundna upplýsingaskyldu bankans,“ segir í tilkynningunni.

Í tilkynningu frá Íslandsbanka í kjölfarið kom fram að Kvika hefði jafnframt hafnað beiðni Íslandsbanka um samrunaviðræður.