Ferðamaður, sem fannst eftir skamma leit í krefjandi landslagi í Öræfum á föstudagskvöld, reyndist vera látinn. Hann var 19 ára gamall.
Þetta kom fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi í gær.
Aðstoðarbeiðni barst lögreglu um tíuleytið á föstudagskvöld frá erlendum ferðamönnum sem dvöldu í Öræfum.
Þeir óskuðu eftir aðstoð við leit að 19 ára samferðamanni sem hafði farið í göngu við Svínafell og ekki komið til baka innan eðlilegra tímamarka miðað við áætlun.
Björgunarsveit í Öræfum var þegar í stað kölluð út til leitar sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. Þyrluáhöfn landhelgisgæslu og björgunarsveitarfólk fluttu hinn látna af vettvangi.
Í tilkynningu segir að lögreglan á Suðurlandi hafi atvikið til rannsóknar en ekkert hafi komið fram sem bendi til annars en að maðurinn hafi látist af slysförum.