Þjóðmálin
26. febrúar 2025
Gestur Dagmála í dag er Fiskikóngurinn, Kristján Berg. Hann fer um víðan völl og ræðir ferillinn í fiskbúðinni sem fagnar 35 ára afmæli í næsta mánuði. Kristjáni er ekkert óviðkomandi. Trump, Sjálfstæðisflokkurinn og hver hann telur að eigi að verða næsti formaður flokksins. Þá upplýsir hann um leyndan draum að mögulega hasla sér völl í stjórnmálum.
Fiskikóngurinn var ekki alltaf á beinu brautinni og í þættinum ræðir hann á einstaklega einlægan hátt um eiturlyfjaneyslu og í framhaldi af því þegar hann fékk rauða spjaldið og sætti dómi og sat í fangelsi í hátt í tvö ár. Erfiðasta stundin var þegar hann settist niður með börnunum sínum og sagði þeim allt af létta. Hann óttaðist höfnun en samtalið gerði hann frjálsan.