Fjárhagsstaða Árborgar var verri en sjálfstæðismenn gerðu ráð fyrir þegar þeir tóku við meirihlutanum árið 2022. Ráðist var í miklar hagræðingaraðgerðir og nú er staðan sú að ársreikningurinn fyrir árið 2024 er einn sá besti í sögu sveitarfélagsins.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, er nýjasti gestur Dagmála og í þættinum fer hann m.a. yfir hvernig bæjarstjórn tókst að snúa við stöðunni á skömmum tíma, pólitíkina í Árborg og sín eigin framtíðaráform fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar eftir eitt ár.