Aðalfundur Heklu

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Aðalfundur Heklu

Kaupa Í körfu

Öllu starfsfólki Heklu, 190 að tölu, var boðið á aðalfund sl. föstudag í nýjum húsakynnum vélasviðs Heklu við Klettagarða. Þetta er í fyrsta skipti í 70 ára sögu félagsins sem starfsmönnum er öllum boðið á fundinn og er það liður í þeirri stefnu stjórnar, forstjóra og stjórnenda Heklu að auka enn frekar upplýsingaflæði til starfsfólks. "Við höfum verið að innleiða breytingar undanfarið ár í starfsmannamálum og í upplýsingagjöf til starfsmanna. Við teljum að þeir eigi rétt á að vita um rekstur félagsins því þetta er þeirra líf rétt eins og okkar stjórnenda og eigenda," segir Tryggvi Jónsson, forstjóri og einn eigenda fyrirtækisins. Myndatexti: Meiri upplýsingar Tryggvi Jónsson, forstjóri Heklu, ávarpar aðalfundinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar