Jóhann Waage

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jóhann Waage

Kaupa Í körfu

Á HEIMILI sínu í Hafnarfirði vinnur Jóhann Waage, markaðsfræðingur og grafískur hönnuður, hörðum höndum að því að hanna lukkudýr fyrir íþróttafélög í Ameríku og Evrópu. Jóhann hefur hannað vörumerki og lukkudýr fyrir nokkur íþróttafélög hér á landi, til dæmis Skallagrím og Keflavík. Einnig hefur Jóhann unnið í samstarfi við Henson að hönnun keppnisbúninga og íþróttagalla fyrir íslensk félög. Árið 2004 gaf hann svo út bókina Jólastríðið sem hann ekki aðeins samdi heldur teiknaði hann einnig myndirnar í hana, en þær skipta miklu varðandi söguþráð bókarinnar. MYNDATEXTI Jóhann Waage hefur meira en nóg að gera við hönnun lukkudýra og íþróttabúninga

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar