Jökulsárlón

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jökulsárlón

Kaupa Í körfu

Magnað sjónarspil blasti við áhorfendum á árlegri flugeldasýningu við Jökulsárlón á laugardagskvöld. Fjöldi kertaljósa hafði verið tendraður úti á ísjökunum í lóninu og flugeldar lýstu upp heiðloftið fyrir ofan svo úr varð stórbrotið samspil lita og ljóss. Flugeldasýningin var nú haldin í 10. skipti til styrktar Björgunarfélagi Hornafjarðar sem útvegar flugeldana í hvert sinn. Ferðaþjónustan Jökulsárlón ehf. hefur umsjón með sýningunni og að sögn talsmanna hennar var hún ákaflega vel heppnuð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar