Háskóli Íslands - Þórsteinssjóður stofnaður

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Háskóli Íslands - Þórsteinssjóður stofnaður

Kaupa Í körfu

NÝR styrktarsjóður, Þórsteinssjóður, var stofnaður við Háskóla Íslands í gær. Sjóðurinn er stofnaður af Blindravinafélagi Íslands og er stofnfé hans 30 milljónir króna, sem Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, tók við. Tilkoma sjóðsins breytir stórkostlega möguleikum blindra og sjónskertra til þess að helga sig háskólanámi en í dag eru sjö blindir og sjónskertir nemendur sem njóta úrræða við Háskóla Íslands, að því er segir í tilkynningu. MYNDATEXTI: Undirritun - Elín Pálsdóttir, stjórnarmaður í Blindravinafélaginu, Helga Eysteinsdóttir, formaður félagsins, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu samninginn um stofnun styrktarsjóðsins í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar