Matgæðingar í Listaháskólanum
Kaupa Í körfu
Andrúmsloftið í Listaháskólanum hefur tekið stakkaskiptum eftir að farið var að töfra fram hollmeti fyrir verðandi hönnuði, listamenn og starfsfólk. Jóhanna Ingvarsdóttir hitti stöllurnar sem standa fyrir breytingunni. Við erum öll mjög glöð með nýja mötuneytið og líður afskaplega vel. Við lögðum talsvert á okkur til að þrýsta á um að fá mötuneyti í skólann. Það tókst að lokum og nú eru allir í miklu betra skapi en áður því við þurfum ekki lengur að nærast á samlokuruslinu í sjoppunum hér í kring. Auk þess skapar þetta svo skemmtilega stemningu hér," sagði Jóhannes Þórðarson, deildarforseti í Listaháskóla Íslands við Skipholt, sem var að gæða sér á afar girnilegu Sumarlegu salati, brauði og viðbiti ásamt fjölda annarra nemenda og kennara við arkitekta- og hönnunardeildir Listaháskóla Íslands í Skipholti 1 þegar Daglegt líf kíkti í heimsókn fyrir skömmu. Andrúmsloftið í skólanum hefur tekið talsverðum stakkaskiptum eftir að vinkonurnar og matgæðingarnir Margrét Þóra Þorláksdóttir og Andrea Guðmundsdóttir tóku að sér að töfra fram hollmeti fyrir verðandi hönnuði, sem nú sitja á skólabekk í Listaháskólanum, kennara og skrifstofufólk
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir