Lamb og hundur

Ingólfur Guðmundsson

Lamb og hundur

Kaupa Í körfu

ÞAÐ fór vel á með hundinum Húna og ónefnda lambinu við bæinn Villingavatn í Grafningi á dögunum. Húni sat vaktina meðan lambið reyndi að ná áttum eftir að hafa orðið viðskila við móðurina og fengið mjólk á pela. Engum sögum fer af framhaldinu en á myndinni má glögglega sjá að Húni tók hlutverk sitt mjög alvarlega og vék ekki frá hlið lambsins á meðan óvissuástand ríkti. Lambinu virtist eftirlitið vel líka og hafði ekki miklar áhyggjur þó að mamma væri víðsfjarri. Húni gerði greinilega líka sitt besta til að finna móðurina. /Ekki annar texti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar