ÍR frjálsar mót í Laugardal

Halldór Kolbeins

ÍR frjálsar mót í Laugardal

Kaupa Í körfu

MIKIÐ var á sig lagt í Laugardalnum í gær þegar fram fór miðnæturmót ÍR í frjálsum íþróttum, mest þó í 200 metra hlaupi sem jafnframt var minningarhlaup um Hauk Clausen, einn mesta afreksmann ÍR, sem lést í síðastliðnum mánuði á 75. aldursári. Þá spretti unnu Sunna Gestsdóttir UMSS á 24,99 og Bjarni Þór Traustason úr FH á 22,94 og fengu að launum bikar til minningar, sem afhentur var af dætrum Hauks, Þórunni Ernu og Ragnheiði Elínu Clausen. MYNDATEXTI. Dætur Hauks Clausen, Þórunn Erna og Ragnheiður Elín, afhentu Sunnu Gestsdóttur, UMSS, og Bjarna Þór Traustasyni, FH, sigurverðlaunin á Laugardalsvellinum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar