Kvennalandslið

Jim Smart

Kvennalandslið

Kaupa Í körfu

KVENNALANDSLIÐIÐ í knattspyrnu stekkur fram á sviðið kl. 16 á laugardaginn - ætlar sér að fylgja eftir góðum árangri karlalandsliðsins með því að vinna Ungverjaland í fyrsta leik liðsins í undankeppni Evrópumótsins. Kvenfólkið náði góðum árangri í fyrra þegar það komst í umspil um laust sæti á úrslitakeppni heimsmeistaramótsins. Þó svo að litlar upplýsingar sé að hafa um mótherjana nú, er ljóst að íslensku stúlkurnar eira engu og eru fullar sjálfstrausts. MYNDATEXTI. Helena Ólafsdóttir landsliðsþjálfari og Úlfar Hinriksson aðstoðarþjálfari. Á myndinni fyrir neðan er landsliðshópurinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar