Kjarnfóðurgjöf á Hálsi í Köldukinn

Atli Vigfússon Laxamýri

Kjarnfóðurgjöf á Hálsi í Köldukinn

Kaupa Í körfu

TÆKNIVÆÐING í fjósum verður meiri og meiri eftir því sem árin líða og eru flestir bændur duglegir við að nýta sér þá margbreytilegu möguleika sem fyrir hendi eru. Nýlega tóku bændurnir á Hálsi í Köldukinn í notkun tölvustýrðan kjarnfóðurvagn sem getur ferðast sjálfur um fjósið og séð um að gefa kúnum þann fóðurbæti sem þær þurfa og fer hann allt að sex ferðir á sólarhring. Vagn sem þessi er mikið þarfaþing í básafjósum þar sem hann getur skammtað í sérstakan fóðurdall hjá hverri kú án nokkurra erfiðleika enda hefur þessi tækni verið notuð á Norðurlöndum um árabil þó hún hafi ekki náð hingað til lands að neinu marki fram að þessu. MYNDATEXTI: Marteinn Gunnarsson á Hálsi er ánægður með nýja vagninn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar