Pinku ponsulitla plötubúðin opnuð

Skapti Hallgrímsson

Pinku ponsulitla plötubúðin opnuð

Kaupa Í körfu

PLÖTUBÚÐ með nafninu Pinku ponsulitla plötubúðin verður opnuð í dag í rétt tæplega 12 fermetra húsnæði í Gránufélagsgötu 4; skúr sem áfastur er Herradeild JMJ. Rögnvaldur B. Rögnvaldsson, betur þekktur á Akureyri sem Rögnvaldur gáfaði, er verslunarstjóri nýju búðarinnar og eigandi ásamt eiginkonu sinni. Hann sagði tuttugu ára gamlan draum nú verða að veruleika. MYNDATEXTI. Pinku ponsulitla plötubúðin opnar á Akureyri. Rögnvaldur B. Rögnvaldsson í verslunarstjórastólnum, og verslunarstjórastellingunni eins og hann orðaði það, með son sinn Rökkva í fanginu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar