Söngleikurinn Grease frumsýndur

Árni Torfason

Söngleikurinn Grease frumsýndur

Kaupa Í körfu

Söngleikurinn Grease frumsýndur í Borgarleikhúsi í gærkvöldi ÞAÐ VAR ys og þys baksviðs fyrir frumsýningu söngleiksins Grease í Borgarleikhúsinu í gær. Þau Birgitta Haukdal og Jón Jósep Snæbjörnsson voru að koma sér í gervið og gírinn fyrir sýninguna er ljósmyndari Morgunblaðsins heilsaði upp á þau. Jón Jósep, betur þekktur sem Jónsi í hljómsveitinni Í svörtum fötum fer með hlutverk Daníels Zoëga sem er piltur er hrífst af utanbæjarsnótinni Sandí sem Birgitta Haukdal túlkar. Sögusviðið er sem sagt Ísland, nánar tiltekið úthverfi í Reykjavík samtímans. Söngleikurinn sem er eftir Jim Jacobs og Warren Casey er þýddur og staðfærður af Gísla Rúnari Jónssyni. Forsala miða á sýninguna gekk framar öllum vonum og var löngu uppselt á frumsýninguna og komust því færri að en vildu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar