Kúasmali

Kristján Kristjánsson

Kúasmali

Kaupa Í körfu

JEFF Chris Hallström, 11 ára kúasmali á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit, var nokkuð búmannslegur þar sem hann var að reka kýrnar yfir þjóðveginn við bæinn í vikunni. Hann sagði að þeir væru tveir kúasmalarnir á bænum en félagi hans, Egill Þór Ívarsson, var lasin heima þegar ljósmyndari Morgunblaðisins var á ferð í sveitinni. Jeff sagði að kýrnar á bænum væru um 160 talsins en að einhverjar þeirra væru geldar. Hann sagði að vel gengi að koma öllum þessum fjölda yfir þjóðveginn en að ökumenn þyrftu þó að sýna aðgát. "Það var bíll næstum því búinn að keyra á eina kúna um daginn." MYNDATEXTI. Jeff Chris Hallström kúasmali á Hrafnagili að störfum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar