Bleikar í bíó

Bleikar í bíó

Kaupa Í körfu

FRAMHALD hinnar meinhæðnu myndar Löggilt ljóska með Reese Witherspoon í burðarrullu verður frumsýnt í kvöld. Heitir framhaldsmyndin Löggilt ljóska 2: Rautt, hvítt og ljóst (Legally Blonde 2: Red, White and Blonde) og var grallaraleg forsýning sett upp á myndinni síðastliðinn föstudag í Smárabíói. Þá fengu ljóshærðar, bleikklæddar stúlkur að berja myndina augum í friði fyrir öðrum sem var meinaður aðgangur þetta kvöldið. Skemmtu stúlkurnar sér hið besta og mauluðu popp undir nýjustu svaðilförum ljóskunnar eitilhörðu. MYNDATEXTI. Aldís og Rakel eru "alvöru" ljóskur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar